Ég bakaði sörur, er ekkert smá stolt af mér. Og öllum finnst þær rosa góðar.
Fyrir svona viku fór ég með systrum mínum og frænku í Westland mollið og við lentum í smá umferð. Við þurftum að komast inn í röðina og á endanum varð systir mín orðin svo þreytt á að bíða eftir að einhver hleypti okkur inn að hún leit í spegilinn og losaði hárið sitt úr tagli og rendi niður rúðunni. Henni var strax hleypt inn í röðina af einhverjum gaur sem síðan sendi henni fingur koss. Þetta var bara nokkuð flott.
Síðan síðasta þriðjudag fór ég með Xeniu, Annie og vinkonu þeirra að sjá 'Breaking dawn' og það var rosa gaman, fengum okkur að borða fyrst og svo að sjá myndina. Bíóið í Westland var lokað svo við þurftum að fara alla leið til Panama city en það var allt í lagi, ég fór hvort eð er ekki í skólann næsta dag.
Á föstudaginn fór ég í veislu hjá vinnu mömmu minnar, held ég, í tilefni mömmudagsins sem var í gær. Og þar vorum við dætur mæðranna að aðstoða, dreifa gjöfum og svoleiðis. Það var bara rosa gaman og svo var tískusýning þar sem nokkrar dætur voru módelin. Og þetta voru bara ágæt föt í svona skrifstofu vinnu stíl. Og svo nokkrir ballkjólar.
Svo í gær var mömmudagurinn. Ég fór snemma með pabba mínum út í búð og þar keyptum við í matinn og ég keypti í sörurnar. Svo eyddum ég og pabbi minn öllum deginum í eldhúsinu, hann að elda kvöldmat og ég að baka sörur. Fjölskyldan kom í heimsókn og voru syngjandi og dansandi allan daginn. Og frænkur mínar voru endalaust að næla sér í sörurnar mínar áður en þær voru tilbúnar. Svo fóru flestir en sumir voru eftir í mat. Svo eftir matinn fórum við að skreyta jólatréð, sem mér finnst frekar snemmt.
Í dag kláruðum við að skreyta húsið og svo fórum við að mála veggina í einu gestaherberginu bleika. Það var frekar skemmtilegt.
Og núna seinni partinn fórum við í kveðjupartí hjá Annie því hún er að fara aftur til Alaska. Það var alveg svaka gaman. Einn af gaurunum sem voru að reyna við mig í óvæntu heimkomu Annie, þessi sem var frekar skemmtilegur og hann heitir Joel, var þar og var að spila borðtennis með öðrum gaurum og svo bauð hann mér að prófa. Ég hef ekki spilað borðtennis síðan ég var á spáni og var frekar riðguð en þetta rifjaðist upp frekar fljótt. Svo vildi Estefany spila við mig og svo einn af gaurunum og svo litla stelpan sem var alltaf að týna upp boltann þegar hann fór út af og svo litli strákurinn sem var líka að týna boltann upp. Svo vildi mamma mín taka fjölskyldumyndir með Annie, bara fjölskyldan, ég, Xenia og Estefany, og svo hún og pabbi. Svo fóru mamma mín og pabbi og við systurnar vorum aðeins lengur. Eftir það var frekar rólegt en þau voru að spila salsa tónlist og ég sagði við vinkonu okkar, sem heitir Eva, að mig langaði að læra salsa. Og hún sagði við pabba Annie að mig langaði að dansa svo hann bauð mér í dans og við dönsuðum og reyndum að tala saman á spænsku. Svo fór hann svo ég var ein eftir að dansa og þá kom Joel til mín og bauð mér líka í dans. Ég veit ekki hvað við dönsuðum lengi en það var geðveikt gaman og svo töluðum við líka saman og hann var alltaf að segja við alla að ég væri kærastan hans og að við værum crazy in love. Svo sagði hann að hann ætlaði að fara til Íslands. En hann er rosa fyndinn og skemmtilegur.
Svo fór ég með systrum mínum og Evu og við fórum fyrst heim til hennar að ná í eitthvað dót og svo fórum við í eitthvað annað partý en ég og Estefany áttum að bíða í bílum, veit ekki afhverju, en þetta voru bara 15 mín.
Svo þegar við komum heim var ég orðin rosa þreytt en ég ákvað samt að skrifa þetta blogg, vegna þess að ég er svo montin af sörunum :P
Þangað til næst.
P.s. ég gleymdi að setja það inn í síðasta blogg að það var alveg svaka flóð hérna í borginni minni. Allt á bólakafi og nokkrir dánir. Af þeim látnu voru tvo börn. Ég sá aldrei flóðið með eigin augum en það voru alveg endalausar fréttir af því. Þetta var alveg svakalegt.
Jólatréð
Þau sögðu mér að mála, en þau sögðu ekki hvað ég ætti að mála :P
Ég og Joel að dansa :D
Graðir gaurar: 44
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju byrja þau svona snemma að skreyta fyrir jólin?
2. Afhverju má ég ekki segja foreldrum mínum að við fórum til Panama city til að sjá Breaking dawn?
3. Afhverju halda allir að ég sé svona mikið eldri en ég er?
4. Afhverju finnst vinum mínum ég vera með fallega hendi?
5. Afhverju er allt svona ódýrt hérna?
No comments:
Post a Comment