Monday, 29 October 2012

29. október 2012

Hæhæ,

Í dag á mamma mín hérna afmæli. Við ætlum að fara út að borða og halda upp á það. Ég teiknaði handa henni kort, sem ég verð að segja að hafi tekist nokkuð vel til þótt ég segi svo sjálf. Svo ætla ég að gefa henni gjöf líka sem ég hef ekki ennþá haft tíma til að gera, því ég má ekki fara neitt ein. En pabbi minn ætlar að redda mér.
Í dag fórum við í ensku próf í skólanum og ég get svarið að þetta hefði ekki getað verið auðveldara. Ég var í svona tvær mínútur að leysa það, en öllum fannst það sjúklega erfitt. Svo voru líka heilmargar villur í prófinu sjálfu en ég nennti ekki að leiðrétta kennarann.
Mér finnst líka svoldið furðulegt við skólann að þau beinlínis loka okkur inni. Það eru hlið á skólanum sem eru lokuð meðan skólatíminn er og þú mátt aðeins fara út ef þú ert veikur og búinn að fá leyfi frá skólastjóranum um að fara heim. Við erum kannski búin í skólanum, það eru ekki fleiri tímar og okkur er hreinlega bannað að fara fyrr en skólatíminn er búinn. Eins og t.d. daginn sem við vorum ekki í neinum tíma, við urðum bara að hanga og gera ekki neitt þar til klukkan varð 12:40. Þessi skóli er alveg rosa brenglaður.
Núna 14. nóvember er ég að fara á fótbolta leik: Panama vs Spain. Hlakkar rosa mikið til, það verður örugglega rosa stemming. Fólkið hérna í Panama er rosalega hrifið af fótbolta. Ég veit hins vegar ekki hvort ég eigi að halda með Panama eða Spáni. Venjulega myndi ég halda með Spáni en langar ekki að móðga fjölskyldu mína með því að halda ekki með Panama, því þau eru svo miklir fótbolta aðdáendur og mjög stolt af sínu liði. Ætli ég verði ekki bara í rauðu, sem er litur beggja liðanna, og hvetji þau bæði. :D
Ég er búin að vera að tala svo mikið á ensku og spænsku að mér er farið að finnast skrýtið að tala íslensku t.d. við foreldra mína og vini.
Segjum þetta gott,

Bæbæ

Graðir gaurar: 21

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju er ég alltaf svöng?
2. Afhverju borða allir hrísgrjón og kjúkling að minnsta kosti einu sinni á dag?
3. Hef ég hitt þessa manneskju áður?
4. Afhverju tala sumir ekki við mig í skólanum en þegar við erum á fb hætta þeir ekki að blaðra?
5. Afhverju setja þau salt á allt, salat, egg, brauð og bara allt?

Tuesday, 23 October 2012

23. október 2012

Halló allir,

Ég er búin að komast að því á undan förnum dögum að ég hefði ekki getað verið heppnari með fjölskyldu. Þau standa með mér sama hvað gerist og gera allt sem þau geta til að hjálpa mér. Ég veit ekki hvernig ég hefði lifað af síðustu daga án þeirra. Mér finnst ég vera alveg rosalega heppin og ég verð þeim ævinlega þakklát fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mig.
Hérna í Panama er alltaf jafn heitt, eitthvað sem ég á ekki beint eftir að sakna þegar ég fer heim. Systur mínar, Estefany og Xenia, sáu mynd af öðrum skiptinemum frá Gorgona strönd og á þeirri mynd voru Mike frá Bandaríkjunum og Olle frá Þýskalandi. Þeim fannst þeir svo sætir og vilja endilega að ég kynni þær fyrir þeim.
Í skólanum gerum við alltaf jafn lítið. Á föstudaginn fórum við t.d. ekki í neinn tíma. Ég ætlaði að byðja foreldra mína að leyfa mér að vera heima þann dag og þegar ég hugsa til þess þá hefði ég átt að gera það. Margt hefði geta farið allt öðru vísi ef ég hefði ekki mætt í skólann.
Ég hef í rauninni ekki margt að segja að þessu sinni. Mig langaði bara allt í einu að skrifa blogg. Í næsta bloggi mun ég örugglega hafa fleira að segja.

Bæjjó spæjjó :P

P.s. mér finnst að ég þurfi aðeins að útskýra "graðir gaurar" betur. Það eru sem sagt bílstjórar eða fólk úti á götu sem ég þekki ekki neitt.

Graðir gaurar: 15

Spurningar bloggsins:

1. Hvernig getur einhver átt kærasta í eitt ár og fimm mánuði án þess að kyssa hann?
2. Afhverju talar enginn ensku, þótt þau hafi lært jafn lengi og ég?
3. Afhverju vilja svo margir klippa á sér hárið en enginn gerir það?
4. Afhverju megum við ekki vera með naglalakk í skólanum?
5. Afhverju getur enginn borið nafnið mitt fram?

Thursday, 18 October 2012

18. október 2012

สวัสดี, borið fram sa-wai-dee :P

Mér finnst greinilega ekki nóg að læra spænskuna svo Koi (það er ekki skrifað Goy) er farin að kenna mér tælensku, hehe :P
Ég, Fruzsi, Amarens og nokkrir aðrir skiptinemar hittumst í þessari viku fyrir orientation á Gorgona beach. Það var geðveikt gaman. Á daginn vorum við með prógramm og í frítímanum fórum við á ströndina. Og á nóttunni vorum við með partý. :D Það sem meira er, þá voru nokkrir sjálfboðaliðar hjá AFS að partý-ast með okkur. Þannig að við sváfum ekki mikið þessar tvær nætur sem við vorum þarna. :D Seinni nóttina svaf ég alls ekki neitt. Um kvöldið stukkum ég og Grace, frá USA, út í sundlaugina í öllum fötunum. Sem betur fer hafði ég vit á því að taka úrið mitt af mér áður en ég fór úr íbúðinni okkar, annars hefði ég örugglega gleymt að taka það af mér. Seinna um morguninn þegar allir voru farnir að sofa fór ég svo aftur út í, því ég var alls ekkert þreytt. :) Svo fór ég að ströndinni og horfði á sólar uppkomuna.
Það er frekar fyndið, og ég tók eftir þessu fyrir þó nokkru, að ég er farin að hugsa á ensku. T.d. hugsaði ég fyrir fram öll bloggin á ensku áður en ég skrifaði þau á íslensku. Hins vegar finnst mér spænskan koma frekar hægt hjá mér. :S Ég þarf að fara að æfa mig meira.
Ég er að hugsa um að fara að æfa salsa dans hérna, annars á ég eftir að verða svo feit. Sumir segja að ASF standi fyrir another fat student og ég get sagt að það sé rétt hjá þeim. Fruzsi og Amarens segja það líka.

Ég hef ákveðið, bara svona til að gera þetta aðeins skemmtilegra, að telja hvað það eru margir graðir panamískir gaurar hérna :P
So far: 7 graðir

Og svo langar mig að skrifa niður 5 spurningar um Panama í hverju bloggi.
1. Afhverju er fólkið hrætt við rigninguna?
2. Afhverju eru allir með langar neglur, líka strákarnir?
3. Afhverju mæta kennararnir ekki í tíma?
4. Afhverju koma kennararnir í tíma, lesa okkur upp og fara svo?
5. Afhverju gerum við ekkert í tíma jafn vel þótt kennarinn komi?

Bæbæ, í tælensku: ลาก่อน og borið fram: la-gone :P

Wednesday, 10 October 2012

10. octóber. 2012

Hola everybody!!

Hérna í Panama er ennþá rosa gaman, ég finn ennþá ekkert fyrir þessari svaka heimþrá sem á að koma núna á næstu vikum. Ég hef ekki áhyggjur af því, reyndar hef ég frekar áhyggjur af því að tíminn er of fjlótur að líða. Ég meina það er nú þegar liðinn einn mánuður. Bara 10 eftir. :(
Í gær fór ég með Goy og Amarenz til Panama city til að kaupa miða á fótboltaleik, Panama vs Spain, í nóvember. Við ætluðum líka að fara í Albrook, sem er eitt af mollunum í Panama. En þar sem við fórum ekki heim eftir skóla til að skipta um föt fengum við ekki að fara inn. Engir skólabúningar leifðir nema í fylgd með fullorðnum. Ég fatta þetta ekki, fyrst eru þau að troða okkur í þessa skólabúninga og svo megum við ekki vera neins staðar í þeim.
Ég og Goy erum orðnar rosa góðar vinkonur og ég er strax farin að kvíða fyrir því þegar hún fer. Hún er búin að vera hérna í 7 mánuði og fer því í janúar. En við erum búnar að ákveða að ég fari og heimsæki hana til Thailands og hún komi í heimsókn til Íslands. Og mamma, núna er ég komin með tvöfalda ástæðu til að fara til Hollands þegar ég kem heim. Bæði til að hitta Liesbeth og þau hin frá Amsterdam og til að hitta Amarenz aftur. :D
Næsta mánudag er ég að fara hitta alla hina frá AFS og við verðum á ströndinni í þrjá daga að tana 8-) Það verður rosa gaman, en pabbi minn sagði að ég þyrfti að fara rosa varlega á þessari strönd af því að fólk væri oft að deyja þarna. Ég sagði honum að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, ég bjarga mér. :P
Ég er að hugsa um að taka yfir ensku tímana í skólanum. Ég þarf að halda aftur af mér í hverjum einasta tíma svo ég leiðrétti ekki hvert einasta orð sem kennarinn segir í ensku. Mig langar bara að segja: ,,Heyrðu, sestu bara niður, hlustaðu og lærðu. Ég hef margt að kenna þér". Eina vandamálið er að ég kann ekk að útskýra enskuna á spænsku og ég efast um að þau myndi læra margt ef ég færi að útskýra á íslensku. :D
Ég er oft syngjandi í skólanum, þegar ég skil ekki hvað fólk er að tala um raula ég oft bara með sjálfri mér og Anais bað mig um að kenna sér Lítill mexíkani. Ég lærði það lag áður en ég fór út bara vegna þess að það er um mexíkana. :P En allavegana reyndi ég að kenna henni það og fór yfir hvert orð fyrir sig. Hún náði því nokkurn veginn, nema "lítill"

Kveðjur frá Panama :P