Hæjjj allir,
Það er búið að vera frekar lítið að gera frá því að ég skrifaði seinast. Vakna, fara í skólann, koma heim, finna mér eitthvað að gera, fara að sofa og svo vakna..... Ekkert merkilegt en þetta er víst líf unglinga í Panama. En ég er ekki að kvarta það er bara ekki venjan að fara út að hitta vinina á virkum dögum.
Það kom stelpa hingað í gær sem heitir Annie, ég held að hún sé frænka mín, en hún er búin að vera í sex mánuði í Alaska að læra. Svo fórum við með henni til fjölskyldu hennar sem vissi ekki að hún væri komin. Hún vildi koma þeim á óvart. Fyrst fórum við til mömmu hennar í vinnuna hennar og hún varð ekkert smá hissa og glöð. Svo kom pabbi hennar og hann brast bara í grát hann varð svo glaður að sjá littlu stelpuna sína. Svo komu bræður hennar og vinir fjölskyldunnar og þetta varð svona óvænt heimkomu partý. Ég veit ekki hvað margir gaurar voru að reyna við mig en þeir voru þó nokkrir, og einn þeirra var alveg ágætur. Fyndinn og skemmtilegur. Svo fóru þeir í sjokk þegar þeir heyrðu að ég væri bara 17 ára.
Svo keyrðum við um bæinn og heimsóttum vini hennar og fjölskyldu. Þetta var bara rosa gaman og þar sem hún hafði verið í Alaska kunni hún ágæta ensku.
Næstu helgi ætlar vinkona mín sem er líka hérna með AFS en ekki sem skiptinemi heldur sjálfboðaliði að koma í heimsókn vegna þess að hún er að fara 6. desember.
Mér finnst ég vera svo þroskuð miðað við bekkjarfélaga mína og systur mína sem eru á sama aldri og ég. Fyrir nokkrum dögum fóru t.d. bekkjarfélagar mínir í pappírs slag, sem er eins og snjóstríð nema með pappír. Ég gat ekki annað en hlegið að þeim.
En eins og ég sagði er búið að vera frekar rólegt og ég hef ekki mikið annað að segja og fjölskylda mín er að segja mér að slökkva á tölvunni vegna þess að það er rigning úti. Þessi hræðsla við rigninguna er ekki eðlileg.
Bæjjó spæjjó
Mamma Annie var mjög glöð að sjá hana
Bekkjarfélagar mínir í pappírs slag
Ég þegar ég sá hvað þau voru að gera
Graðir gaurar: 37
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju geta nemendur ekki tekið símana sína með sér í skólann, Ipota eða myndavélar en þeir meiga taka með sér tölvurnar sínar og þau geta tekið myndir með webcam, farið á netið og spjallað við fólk og hlustað á tónlist í tímum?
2. Getur einhver sagt mér hvernig þessi talnaruna meikar sence, 1=2, 2=4, 3=6, 5=10, 10=20, 15=35?
3. Afhverju geta nemendur ekki haft sína síma en kennararnir geta talað í símana sína alla kennslustundina?
4. Afhverju er hættulegt að hafa kveikt á tölvunum þegar það er rigning úti?
5. Afhverju förum við í sumarfrí um jólin?
No comments:
Post a Comment