Hæ, hæ allir.
Það er frekar fyndið að nafnið mitt 'Una' þýðir ein á spænsku. Þegar ég kom hingað voru allir "ahhh, so u are the one". Svo komst ég að því að nicknamið mitt 'Bogga' þýðir varir. Þess vegna kalla allir mig bara Bobba. Það virðist ekki hafa neina aðra þýðingu. :P
Hundurinn okkar, Lecter, er alveg rosalega sætur en það er alveg óþolandi hvað hann er óuppalinn. Hann heldur alltaf fyrir mér vöku á nóttinni og vekur mig snemma á morgnana með endalausu gelti. Enginn annar virðist vera að pirra sig á þessu. En hann er samt algjör dúlla svo ég get ekki verið pirruð út í hann. :D
Mér finnst ég vera alveg hrikalega snyrtileg hérna, og fyrir ykkur sem farið í hláturskast þegar þið lesið þetta þá ættuð þið að sjá hvernig þetta er hérna. Íspinna spýtur á gólfunum og svoleiðis. Ég var að vaska upp í gær og sumt af þessu var alveg ógeðslegt. T.d. þá var einn pottur sem var allur út í eldgömlum matarleifum. Þar sem fólkið vaskar upp með svampi en ekki uppþvottabursta þá var frekar erfitt að þrífa þær í burtu, en ég held að ég hafi náð þeim flestum. Svo var líka kaffikannan. Kannan sjálf var s.s. nokkuð hrein en lokið, sem ég held að hafi einu sinni verið hvítt var dökk brúnnt. Ég er nokkuð viss um að hún hafi aldrei verið þrifin almennilega. Þegar ég var búin var lokið orðið svona ljósbrúnt. Fjölskyldu minni fannst ég eflaust frekar lengi að þessu. Sérstaklega þegar ég var að þurrka pottinn og tók eftir að hann var ennþá hræðilega skítugur og fór að reyna að þrífa hann aftur. Systir mín horfði alveg undrandi á mig. Ég held að ég muni heimta að vaska alltaf upp núna. :D
Svo langar mig aðeins að minnast meira á umferðareglurnar. Mér sýnist ég vera sú eina sem notar beltið og svo er maður alltaf að sjá einhverja sitjandi ofan á hvort öðru eða bara í skottinu. Þetta er meira að segja gert í leigubílum.
En segjum þetta gott í bili. :D
P.s. er búin að sjá umferðaljós. Þau eru greinilega inni í stærri borgunum. :P
No comments:
Post a Comment