Í dag vaknaði ég við það að það var stormur yfir La Chorrera eða alla vegana Guadalupe. Þrumur og eldingar og engin smá rigning. Ég hef aldrei séð aðra eins helli dembu og að sjá leiftrin frá eldingunum og heyra þrumurnar var ekkert smá skrítin tilfinning. Þær voru greinilega alveg rétt hjá. Ég held að ég hafi aldrei upplifað annað eins, ekki skemmtilegt að vakna upp við þennan dómsdags hávaða. Og ekki bara það heldur var þetta frekar snemma og ég náði ekki að sofna aftur svo ég var náttúrulega alveg dauðþreytt. Þegar ég leit út um gluggan sá ég líka að greyið Lecter var alveg skíthræddur, hann er alltaf hræddur við þrumurnar og núna voru þær svo nærri að ég hélt að hann myndi missa vitið. Hann var verri en Lóa á gamlárskvöldum. En ég viður kenni að mér fannst þetta spennandi, ég er frekar hrifin af þrumustormum.
Sofhia kom í heimsókn síðustu helgi. Hún er ekkert smá mikil dúlla og henni er farið að líka mjög vel við mig og brosir breitt í hvert skipti sem hún sér mig. Henni finnst mjög gaman að leika sér með síma sem er frekar sætt. Svo er hún alveg að fara að geta skriðið. Frændi minn var að reyna að fá hana til að skríða með því að lokka hana með dóti og það tókst næst um því.
Þetta er búin að vera róleg vika, enginn skóli vegna þess að prófin eru búin en hann byrjar aftur í næstu viku. Ég er hins vegar búin að vera veik með hálsbólgu, hósta og núna seinustu tvo daga hita líka. Í dag heimtaði pabbi minn að fara með mig til læknis þótt að ég sagði að það væri alveg ónauðsynlegt en hann hlustaði ekki. Svo við fórum til læknis sem gerði ekki neitt annað en að skoða hálsinn á mér og hlusta á andardráttinn með hlustunarpípu og komst svo að þeirri niðurstöðu að ég væri með hálsbólgu, er það ekki merkilegt. Ég meina það er ekki eins og ég hefði geta sagt þeim það. Ég meina það fólkið hérna er gjörsamlega vænisjúkt þegar kemur að veikindum. Fólk fær pillur og sprautur við öllu. Læknirinn vildi að ég tæki einhverjar pillur í fimmtán daga, eina á dag, aðrar pillur, líka eina á dag, í eina viku og hóstasaft. Ég sagði að það væri bara vitleysa að eyða peningum í allt þetta og á endanum keypti pabbi minn bara hóstasaftið sem er ennþá verra en það sem ég var látin taka þegar ég var lítil. Fólkið hérna ætti að slaka aðeins á. Mamma mín t.d. má ekki hósta einu sinni án þess að hlaupa út í apótek og kaupa allskonar dót sem á að lækna hóstann, þegar fólk fær flensu fær það einhverja sprautu hjá læknunum sem hjálpar ekki neitt og þau eru veik alveg jafn lengi og þau hefðu verið án hennar. Og ég skil heldur ekki hvers vegna fólk ber svona svakalegt traust til læknanna hérna, allir þeir læknar sem ég hef hitt hérna eru ekkert það góðir. T.d. læknirinn sem ég hitti í dag spurði hvort ég væri með hita og þegar ég sagði að ég héldi að ég væri með hita en væri ekki viss vegna þess að fjölskylda mín á ekki hitamæli, þá í staðinn fyrir að mæla mig þá hunsaði hann það algjörlega. Og þegar ég fór til læknis vegna mígrenisins þá þurfti læknirinn endilega að mæla blóðþrýstinginn vegna þess að hann hefur greinilega eitthvað að gera með mígreni. Seinast en ekki síst læknirinn sem ég hitti þegar við Koi fórum á spítalann gat ekki einu sinni tekið úr nál heldur reif hana úr með teipinu sem hélt henni án þess að hugsa út í það að það væri nál föst undir því og reif alveg upp á mér hendina. Svo ég er svolítið að velta þessu fyrir mér.
En ég hef svo sem ekkert meira að segja og eins og mamma mín heima á Íslandi er að benda mér á að það er nótt og fjölskyldan mín vill ekki að ég sé að vaka fram eftir nóttu... svo það er best að fara að sofa.
Adiós, dulces sueños.
Baby Sofhia :)
Sofhia að borða síma frænku minnar
Lecter að borða mig, honum finnst frekar gaman að japla á fólki :P
Graðir gaurar: 190
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju gerir fólk svona mikið mál úr því að hafa hálsbólgu?
2. Afhverju fær fólk sprautu við öllu?
3. Afhverju eru læknarnir ekki betri hérna, pabbi minn segir að þau hafi góða læknisskóla hérna í Panamá?
4. Er hægt að fá hálsbólgu á því að borða kornfleks eins og mamma mín hérna segir?
5. Afhverju halda mamma mín og Estefany að þær viti allt?
No comments:
Post a Comment