Svo það er búið að rigna í allan dag og þegar ég fór út á veröndina, núna rétt áðan, var komin svo góð lygt í loftið af öllum gróðrinum. Síðan ég kom hingað hefur alltaf bara verið einhverskonar hita lygt, en í dag eftir rigninguna kom svo góð lygt, eins og venjulega þegar ég fer til heitra landa.
En allavegana, á fimmtudaginn í seinustu viku (11. apríl) kom tía Betssie í heimsókn. Mér líkar mjög vel við Betssie og við eigum mjög margt sameiginlegt. Við töluðum allveg helling og hún hjálpaði mér aðeins með spænskuna, pabbi minn sagði að við ættum að fá hana til að kenna mér spænsku þar sem hún er kennari. Hún sagði mér svo frá myndlista námskeiði sem hún var í og sagði að hún væri að fara í safn með hópnum á laugardeginum og hún bauð mér af fara með. Síðan var pabbi minn að gefa henni skrifborð sem hún ætlaði að fara með í skólann þar sem hún vinnur fyrir eitthvað verkefni sem krakkarnir eru að gara og hún bað mig um að hjálpa sér að skreyta það til að gera það skemmtilegra. Hún var með tvo spreybrúsa og við hjálpuðumst að við að skreyta það. Það var mjög skemmtilegt, en það hefði líklegra verið fallegra ef við hefðum notað penlsa og málningu og þetta fór svoldið út um allt. En það kom samt nokkuð vel út. Síðan keyrði pabbi minn borðið heim til Betssie, en þegar hann var að taka það niður af bílnum braut hann eitt hjólið untan borðinu. Betssie var ekki ánægð.
Síðan á föstudeginum fórum ég, mamma mín og pabbi út að borða. Xenia og Estefany komu ekki með vegna þess að daginn eftir var útborgunardagur og Xenia þurfti að útbúa launaseðla fyrir starfsmennina í vinnunni sinni og Estefany var að hjálpa henni. Fyrst fórum við á stað sem sagðist selja "international food", en það eina sem var alþjóðlegt við hann voru nöfnin á réttunum sem voru annað hvort frá Mexico eða Spáni. Svakalega alþjóðlegt eða þannig. Svo kom í ljós að það var ekki hægt að kaupa neitt nema hrísgrjón. Svo við ákváðum að fara eitthvað annað. (Þetta var staðurinn sem ég fór með Xeniu, Estefany og Evu að horfa á fótbolta leikinn). Við keyrðum keyrðum aðeins um Chorrera og svo ákváðu foreldrar mínir að fara á stað sem mig minnir að heiti Mathias Grill. Þar var náttúrulega ekki hægt að fá neitt nema grillað kjöt svo ég endaði með því að panta salat sem var hægt að fá sem auka meðlæti og kartöflur. Síðan kom salatið og þá var það með eitthverri sósu á svo mamma mín skipti við mig, af því að hún veit að mér finnst ekki gott að hafa sósur á salatinu mínu. Síðan kom inn heyrnalaus maður sem var að selja bókamerki til styrktar heyrnalausra. Mamma mín keypti eitt og gaf mér, sagði að það væri vegna þess að hún væri alltaf að sjá mig lesa og nota kvittanir sem bókamerki.
Síðan vaknaði ég snemma, kl 7:45, til að fara með Betssie á safnið í Panama city. Hún kom og náði í mig og svo keyrðum við að Extra, sem er matvörubúð, og fengum far með vinkonum Betssie sem voru líka á námskeiðinu. Safnið var mjög skemmtilegt. Það var einn salur með verkum sem voru bara gerð úr trélitum, og svo var salur með verkum sem voru búin til úr skóreimum og öðrum sem voru búin til úr allskonar dóti s.s. innstungum og ljósaperum. Þetta var allt mjög frumlegt og skemmtilegt. Svo voru líka venjuleg málverk. Við vorum með leiðsögumann og ég var glöð yfir að skilja nokkurn veginn það sem hann sagði okkur. Svo kom ein konan úr hópnum og spurði mig hvort ég þekkti Fruzsi. Þá kom í ljós að hún var mamma Fruzsi hérna í Panama. Þá spurði mig einhver hvort ég væri frá Hollandi, þá var hún greinilega búin að segja þeim frá Amarens. Og þeim fannst mjög merkilegt þegar ég sagði þeim að ég færi frá Íslandi og spurðu mig allskonar spurninga. Ég er að selja Ísland mjög vel og allir sem ég tala við segjast ætla að koma í heimsókn. Síðan fórum við aftur til Chorrera, Betssie og ég vorum orðnar svangar og hún fór með mig á KFC. Ég er ekki svo hrifin af KFC, en hún leyfði mér að velja á milli KFC og McDonalds og mér fannst það vera skárri kostur. Og svo eru þau á KFC með ágætar Quasadillas hérna svo það var ekki svo slæmt. Síðan fórum við í Extra til að ná í bílinn hennar og fórum svo heim, við vorum báðar alveg svaka þreyttar svo þegar við komum heim settumst við niður í stofunnu og spjölluðum við mömmu mína þar til pabbi minn kom heim, sem þurfti að vinna alla helgina. Hann tekur oft að sér aukavinnu. Síðan fór ég snemma að sofa.
Í þessari viku fór ég ekki mikið í skólann, mánudag og þriðjudag var ég heima með mígreni, á miðvikudeginum gleymdi ég að stilla vekjaraklukkuna mína og pabbi minn kom inn til að vekja mig en honum tókst það ekki alveg og ég var sofnuð aftur áður en hann fór út úr herberginu og á fimmtudeginum sagði Fruzsi mér að það væri enginn skóli. Á föstudeginum ákvað ég að fara í skólann, þótt að mig langaði mjög að vera bara heima og sofa. Síðan hefði ég betur gert það því að það var bara einn tími og svo ákváðu nemendurnir að mótmæla einhverjum hlutum, vildu hreinni sjoppu o.s.frv. Svo ég hringdi í leigubílinn minn og bað hana um að koma og sækja mig. En okkur er bannað að fara út af skólalóðinni fyrir einhvern ákveðinn tíma svo ég varð að laumast út. Heppnin var með mér af því að hliðið sem er venjulega læst var opið og enginn vörður var við það. Svo þegar leigubíllinn kom sá einn af kennurunum mig og ég sá það bara á henni hvernig hún braut heilann um það hvort hún ætti að segja eitthvað, síðan ákvað hún að gera það ekki og brosti bara. Eftir á hugsaði ég að ég hefði átt að verða eftir og mótmæla því að við megum ekki fara út af skólalóðinni og þegar við megum það megum við ekki koma inn aftur. Reglurnar í þessum skóla eru óskiljanlegar.
Síðan í næstu viku er mamma mín að fara í vinnuferð á einhverja staði í Panama og við systur mínar og pabbi minn ætlum að hitta hana í Las Tablas næstu helgi. Hlakka til, og þá hitti ég Zar aftur. Frænku mína sem mér líkar svo vel við og bróðir hennar Aivan. Það verður fjör.
En segjum þetta gott í bili.
Adiós amigos
Betssie að skreyta borðið
ég á safninu, þetta er allt búið til úr trélitum
þetta var gert úr skóreimum
ég og Betssie
Til minningar um Möllu mína, ég mun aldrei gleyma þér
Graðir gaurar: 152
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju megum við ekki fara úr skólanum, jafnvel þótt það eru engir tímar?
2. Afhverju kemur amma mín alltaf inn í herbergið mitt á morgnana og byrjar að taka til?
3. Afhverju eru svona margar kóngulær inn á baðherberginu okkar?
4. Afhverju er rigningartímabilið að byrja snemma?
5. Mun ég einhvern tímann læra að brosa aftur, get ekki hætt að gráta vegna greyið Möllu minnar?
No comments:
Post a Comment