Thursday, 28 March 2013

28. mars 2013

Hæhæ

Svo ég var í skólanum um daginn og ég áttaði mig á því að ég á bara rúmlega 4 mánuði þangað til að ég kem heim. Þetta er búið að vera svo fljótt að líða, að ég fór í hálfgert sjokk. Svo fór ég að tala við Fruzsi og hún var heldur ekki búin að átta sig á því hvað það er stuttur tími eftir. Svo fórum við að hafa áhyggjur af því hvað við ættum eftir að læra mikið í spænsku áður en við færum heim og við erum að reyna að finna leiðir til að hjálpa okkur að læra hraðar. Svo ég er farin að horfa á myndir á spænsku og lesa spænskar bækur sem ég er búin að lesa áður, annað hvort á íslensku eða ensku. Vona að það hjálpi eitthvað.
Síðan erum við Fruzsi líka að reyna að finna einhverja leið til að geta tekið Platanoes með okkur heim, vitum ekki alveg hvort að við getum það. Pabbi minn sagði að við gætum hugsanlega reynt að frysta þá.
Það er búið að vera rosa gaman í skólanum, ég var með kynningu í spænsku á spænsku. Ekkert smá stolt af sjálfri mér. Þemað var Grísk goðafræði og hver nemandi fékk ákveðið umræðuefni. Ég talaði um 'the Sirens'. Svo ég gerði kynningu og þýddi síðan yfir á spænsku sem gerði kynninguna frekar skrýtna því Sirens á spænsku er Sirenas og þýðir hafmeyjur, en the sirens í grískri goðafræði eru ekki hafmeyjur heldur blanda af konum og fuglum. Kennarinn sagði að ég væri með góða kynningu, með rosagóðar upplýsingar (aðalega vegna þess að ég vissi að 'the Sirens' væru ekki hafmeyjur) og að ég gerði fáar villur í spænskunni.
Núna í dag eru blóðmítlar búnir að vera út um allt. Ég fann einn á Lecter og plokkaði hann af, hann var alveg pikk fastur og það tók mig smá tíma að ná honum af. Síðan kramdi ég ógeðið (eina kvikindið sem mér finnst ekki óþæginlegt að drepa, fyrir utan mosquito flugurnar). Síðan sá ég tvo aðra skríðandi um svo ég kramdi þá líka. Síðan þegar ég ætlaði aftur inn, sá ég þá ekki skríðandi um sprell lifandi. Ekkert smá eftitt að drepa þá, ég kramdi þá næstum í tvennt en samt deyja þeir ekki en ég held að mér hafi tekist það á endanum. Síðan var einn kominn inn í húsið, drap hann og fór með hann út. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé þá hérna en er búin að vita allan tíman að það er hellingur af þeim í garðinum. Aumingja Lecter er alltaf með þá hangandi á sér út um allt.
Pabbi minn sagði að við ætluðum kannski í ferðalag til Bocas del Toro í júní og fara út í eyjuna þar, en það er bara kannski. Mig langar samt rosa mikið að fara. Þetta er rétt hjá landamærum Costa Rica og það er víst rosalega fallegt þar og mig langar rosa mikið að fara þangað. Fruzsi fór þangað með fjöslkyldunni sinni frá Ungverjalandi þegar þau komu í heimskókn og sagði að það væri rosalega gaman en frekar langt að keyra, 12 klukkutíma akstur.
Á þriðjudags kvöldi var fótbolta leikur, Panama vs Honduras. Ég fór með systrum mínum og Evu að horfa á hann á einhverjum stað þar sem vinir Xeniu og annað fólk kom til að horfa á leikinn. Panama vann 2-0 og allir voru rosa kátir. Síðan eftir leikinn héngum við þarna til klukkan tvö um nóttina, við Estefany vorum svakalega þreyttar enda vaknaði ég klukkan 5, en Estefany svaf yfir sig til klukkan 5:45, til að fara í skólann. En það var svaka gaman, vinir Xeniu eru mjög hressir og skemmtilegir.
En ég hef ekki mikið að annað að segja í bili.
Veit ekki alveg hvort mig hlakki til að fara heim eða kvíði fyrir.

Þangað til næst,
góðar kveðjur frá Panamá.



Tré rétt hjá skólanum mínum við sólar upprás


Fugl sem kom og settist á grein rétt hjá mér


Ég á leiðinni af fara að horfa á leikinn í bol sem ég fékk lánaðann hjá pabba 


Graðir gaurar: 126

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju deyja blóðmítlar ekki?
2. Afhverju er tíminn svona fljótur að líða?
3. Afhverju er aumingja Lecter alltaf veikur?
4. Afhverju er mamma mín alltaf að rífast við alla?
5. Afhverju er skólinn svona skrítinn, alltaf að rugla tímunum saman og hætta snemma?

No comments:

Post a Comment