Saturday, 16 March 2013

16. mars 2013

hæhæ allir saman

Nú er orðið svoldið langt síðan ég bloggaði, svo byrjum bara á byrjuninni. Ekki seinsustu helgi heldur þar seinustu kom fjölskylda pabba míns í heimsókn. Það var bara mjög gaman, eins og venjulega var tónlist spiluð og svo fóru allir að spila á spil og spiluðu upp á smápening. Carlo Augustine kom, frændi minn sem var hjá okkur í byrjun dvalarinnar, og litli bróðir hans José Agusto. José er u.þ.b. 10-11 ára og vildi endilega hjálpa mér að læra spænsku og tók litlu orðabókina mína og fór að lesa upp orð úr henni. Síðan daginn eftir fór ég með systur pabba míns, mömmu Carlo og José, systrum mínum og annari systur pabba míns í Westland mall. Við fórum í nokkrar búðir og þegar við fórum í Via Vai, sem er ein af uppáhalds búðunum mínum hérna með skó og skartgripi, sá ég hrikalega flotta skó á útsölu, 15 dollarar, og ákvað að kaupa þá þótt að ég ætti lítinn pening eftir en þá kom frænka mín og sagðist ætla að kaupa þá fyrir mig. Síðan keypti hún líka skó handa Xeniu. Síðan fórum við heim því þau þurftu að fara að leggja af stað heim svo þau væru ekki of seint á ferðinni.
Síðan leið vikan bara ósköp venjulega, skóli og frekar mikið heimanám, en samt ekkert miðað við Ísland. Og þá viku komu Amarens í skólann fjóra daga og Fruzsi  alla vikunadaga, hugsið ykkur bara. Svo seinustu helgi fórum ég með systrum mínum og Evu, til frænku minnar og frænda, Carlo og José í heimsókn í Santiago og vorum þar yfir helgina. Að keyra til Santiago er aðeins lengra en til Las Tablas. Þetta var bara mjög kósí og frænka mín var að gefa Xeniu alls konar dót sem hún notaði ekki lengur, veski, skó og skartgripi. Og þá skartgripi sem Xenia vildi ekki fékk ég og svo gaf hún mér eina peysu sem er gott að nota á Íslandi. Svo ég fékk sem sagt fullan skókassa af skartgripum, eina peysu og eitt veski. Og auðvitað þakkaði ég frænku minni kærlega fyrir. Svo um nóttina fékk ég loksins að sofa í loftkældu herbergi. Daginn eftir fórum við út að borða og ég fékk loks mat sem ég kannast við, fyrir utan pizzu, Aspassúpu sem var ekkert smá góð. Það var frekar fyndið að sjá allt kjötið á diskunum í kring um mig og svo grænu súpuna mína. Svo í hádegismat eldaði systir mín svaka gott Tacos. Síðan fórum við heim, ég og Mario höfðum ætlað að hittast í Westland en ég kom of seint heim fyrir það svo við ákváðum að fara daginn eftir, eftir skóla. En síðan mátti Mario ekki fara þá, heldur á föstudaginn.
Miðvikudaginn var síðan enginn skóli svo Mario ætlaði að koma heim til mín í heimskókn og hitta mömmu mína, því hún vildi hitta hann áður en ég færi með honum í mollið, en síðan skipti mamma hans um skoðun og hann mátti ekki koma en hann mátti fara með mér í mollið. Svo ég spyr pabba minn hvort það sé í lagi og fékk leifi til að fara í mollið. Það var alveg rosa gaman, ég dró Mario með mér í allskonar fatabúðir og honum fannst bara rosa gaman að skoða föt með mér. Svo fórum við í bíó að sjá fyndnustu hryllings mynd sem ég hef nokkurn tíman séð, Mamá. Síðan fórum við heim og mamma fékk að hitta Mario. Síðan ákváðum við að fara aftur í mollið á föstudeginum og mamma mín leifði mér það. Svo í gær fór ég með föt í skólann til að geta skipt um og eftir skóla fór ég heim til Mario og skipti um föt og síðan lögðum við af stað til Westland. Það var aftur alveg hrikalega gaman en við vorum bæði þreyttari. Síðan þegar við ætluðum heim hittum við mömmu hans og ákváðum að bíða þar til hún færi heim til að spara pening. Svo biðum við í klukkutíma eftir að hún væri búin að versla og pabbi hans kæmi að ná í okkur. Svo keyrði pabbi hans mig heim.
Svo í dag fórum við að þrífa húsið hátt og lágt. Síðan seinni partinn fórum við að syngja Karaoke sem var svaka stuð.

En segjum þetta gott í bili
bæjjóspæjjó


Verið að spila hafnabolta í íþróttum


Hundur frænku minnar í Santiago, algjört krútt


Húsið hans Mario, amma hans stendur í hurðinni


Panama er rosa fallegt land :D

Graðir gaurar: 120

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju halda allir að ég sé miklu eldri en ég er?
2. Afhverju mátti Mario fara með mér í mollið en ekki koma í heimsókn?
3. Afhverju sussaði háværasti gaurinn í bekknum á annað fólk?
4. Afhverju koma Fruzsi og Amarens aldrei í skólann?
5. Afhverju er hættulegt að taka strætó?


No comments:

Post a Comment