jæja þá er ég byrjuð í skólanum aftur. Fyrsti dagurinn var á mánudaginn og ég mætti í skólann og hafði ekki hugmynd um það hvert ég ætti að fara. Stofan sem ég var í fyrir áramót var full af krökkum í bláum skyrtum, en þau eru yngri en við, og næstu stofur voru líka uppteknar. Svo ég labbaði um skólann og vissi ekkert hvað ég ætti að mér að gera. Sá engann sem hafði verið með mér í bekk. Svo var ein konan þarna sem tók eftir því að ég virtist frekar villt og spurði hvar ég ætti að vera. Ég sagði henni að ég væri að fara í 12 bekk og hún fór að leita að listanum fyrir 12 bekk útum allan skólann. Svo loksins fundum við hann en auðvitað var nafnið mitt ekki á listanum en ég þekkti nokkur nöfn af krökkunum sem höfðu verið með mér í bekk svo ég sagði að ég ætti örugglega að vera með þeim. Svo fór hún að spyrja nemendur hvar þessi stofa væri og okkur var leiðbeint þangað. Svo þegar við fundum stofuna þá fattaði ég að það væri búið að blanda báðum bekkjunum saman, þeim sem ég var í og þeim sem Fruzsi og Amarens höfðu verið í, svo ég vissi ekki hvorum ég ætti að vera í þannig að ég ákvað það bara sjálf. Þetta var frekar stuttur dagur svo ég hélt að ég þyrfti að bíða eftir leigubílnum mínum en konan, Aida, var komin snemma.
Daginn eftir tók ég eftir því að þetta skólaár yrði öðruvísi. Við erum actually að gera eitthvað í tímunum og mér finnst ég vera farin að skilja betur spænskuna bara á nokkrum dögum með því að hlusta og reyna að glósa eftir kennurunum. Svo hafði pabbi minn sagt mér að ég þyrfti að fara með einhverja pappíra til skólastjórans til að sækja um skólanám þetta ár, en þá sagði hann mér að það væri ekki laust pláss í þessum árgangi fyrir hádegi og ég þyrfti líklega að koma eftir hádegi í skólann. Hann sagði að bekkirnir væri of stórir, en þetta eru sömu bekkir og í fyrra svo ef þeir eru of stórir núna afhverju voru þeir ekki of stórir þá. Og svo erum við ekki það mörg, 23 með mér og kennurunum finnst við vera ágætlega lítill hópur. Svo ég fatta þetta ekki alveg. En ég fór sem sagt bara aftur í bekkinn minn og ef að einginn kvartar held ég að þetta verið ekkert vandamál. Og um kvöldið kom risastór, ógeðsleg bjöllu fluga (veit ekki hvað hún er kölluð) og ég tók púða og sló hana í burtu og sópaði henni síðan út, en kemur hún síða ekki aftur inn (vegna þess að það er stórt gat á flugnanetinu á hurðinni. Svo flaug hún um í loftinu og ég stend upp, með púðann minn og segi við hana ,,beware, I have a pillow'' og slæ henni út aftur. En allt í einu heyri ég suð í loftinu og hugsa með mér ,,þú gerðir það ekki" lít upp og sé hana fljúga þarna um í rólegheitunum svo ég opna hurðina út á veröndina, sem er gerð úr gleri en ekki flugna neti og slæ henni þar út og lokaði síðan hurðinni og sagði ,,reyndu bara að komast aftur inn núna", sú hurð hélt henni svo loksins úti.
Á miðvikudaginn mætti ég eins og venjulega, 40 mín áður en skólinn byrjar og hitti Caroline, sem talar góða ensku vegna þess að hún bjó í bandaríkjunum. En ég er hins vegar farin að byðja krakkana sem reyna að tala við mig ensku að tala spænsku, því ég þarf að fara að læra þetta blessaða tungumál. Svo nú reyni ég að tala bara ensku í enskutímunum. En allavegana sagði Caroline mér að Anais, vinkona mín frá því í fyrra, hefði ákveðið að hætta skólanum vegna þess að kærastinn hennar hefði beðið hennar. Svo hún er að fara að gifta sig, 17 ára gömul og hætta í námi, sem mér finnst alveg hræðilega heimskulegt en ég get svo sem ekkert gert í því, það er hennar ákvörðun. Í spænsku erum við með heimaverkefni, sem ég hef ekki hugmynd um hvenar við eigum að skila, en það fjallar um gríska goðafræði. Kennarinn úthlutaði okkur hverju sínu verkefni, ég fékk The Sirens, og svo eigum við að búa til kynningu um þau og fara með í tímanum, en eins og ég sagði veit ég ekki hvenar við eigum að vera búin að þessu svo ég flýtti mér bara að skrifa þetta, byrjaði á ensku en pabbi minn ætlar að hjálpa mér að þýða þetta yfir á spænsku um helgina. Í ensku erum við að læra 'faðir vorið' á ensku og eigum að fara með það utanaf næsta föstudag, munnlegt próf. Og svo eigum við að búa til forsíðu fyrir verkefnamöppu með 'faðir vorinu' og einhverjum úrklippum og skila á mánudaginn.
Fimmtudagurinn var frekar venjulegur þangað til í hádegishléinu sá einn kennarinn mig með síma og ég var send til skólastjórans, í fyrsta sinn sem ég hef verið send til skólastjóra á æfinni. En allavegana var það ekkert alvarlegt því ég má sem skiptinemi hafa síma í skólanum ef eitthvað kemur uppá en ég má bara ekki láta hann sjást. Þetta eru alveg fáránlegar reglur því við megum ekki hafa síma en við megum hafa tölvur og spjalla við fólk á fb, við megum ekki hafa Ipod en við megum hlusta á tónlist í tölvunum og svo megum við ekki hafa myndavél en við megum labba um með tölvurnar og taka myndir með webcam. Og svo eru kennararnir alltaf með nefið ofan í símanum í kennslustundunum.
Svo í dag var mjög venjulegur dagur, við fengum fleiri heima verkefni í líffræði og sögu þannig að við höfum þrjú heimaverkefni yfir helgina. Krakkarnir voru að kvarta yfir því að það væri mikið, búa til forsíðu, skrifa niður nokkrar staðreyndir um líffræði og sögu og ég hugsaði bara bitch please þetta kallast varla heimalærdómur, ég meina fimm staðreyndir um líffræði og sögu og forsíða. Lét mig hugsa um öll heimaverkefnin sem ég þarf að gera heim, ritanir og allskonar og ég hef varla tíma til að gera þau öll. Svo þetta er bara ágætt og þá læri ég kannski spænskuna hraðar. Svo vorum við búin klukkan ellefu og ég beið með Marjory (er viss um að það sé skrifað öðruvísi) þar til taxinn minn kæmi klukkan tólf þrjátíu. Svo um kvöldið spilaði ég playstation með Estefany, en ég hef ekki spilað á playstation frá því að ég var lítil og hún rústaði mér alveg.
Fruzsi og Amarens eru ekki búnar að vera þessa viku í skólanum. Fruzsi vegna þess að fjölskylda hennar frá Ungverjalandi var í heimsókn, svo hún byrjar aftur eftir helgina og svo var ég að tala við Amarens í dag og frétti að hún hefði verið í fríi með fjölskyldunni sinni í Costa Rica. Öfunda hana ekkert smá og hún sagði að það hefði verið geðveikt.
Anais sem er að fara að gifta sig
Tilbúin í skólann :P
og ein mynd af Koi vegna þess að ég sakna hennar :(
segjum það gott í bili :)
Graðir gaurar: 108
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju eru allar þessar fáránlegu reglur í skólanum?
2. Afhverju koma allar þessar ógeðslegu pöddur inn á kvöldin en láta ekki sjá sig á daginn?
3. Afhverju er mér kennt um óreiðuna inn á baði þegar hún er mest, ef ekki öll, eftir systur mínar?
4. Afhverju er Anais að hætta í skólanum, ég meina kærastinn hennar er líka í námi?
5. Afhverju getum við ekki farið í frí til Costa Rica?
No comments:
Post a Comment