Sunday, 3 February 2013

4. febrúar 2013

Sæl öll sömul,

Fyrir nokkrum vikum fór ég með fjöslkyldu minni að skoða stöðuvatn. Þetta vatn er hluti af panama skurðinum. Það var alveg hrikalega stórt og svakalega fallegt, þótt vatnið sé frekar skítugt er umhverfið alveg óviðjafnanlegt. Við vorum þar í svona sirka tvo klukkutíma og síðan fórum við og komum að vatninu á öðrum stað. Þar fórum við í bátsferð, og ég er ennþá alveg hissa á því hvað allt er ódýrt. Eftir það fórum við að hitta vini okkar sem eiga ananas rækt, alveg risa stóra með nokkur þúsund ananas. Á leiðinni sá ég letidýr og bað pabba minn um að stoppa bílinn svo ég gæti tekið myndir. Þegar við komum í ananas ræktina fórum við á pallbíl í og fengum að skoða staðinn og taka nokkra ananasa. Ég, pabbi minn og Estefany stóðum aftan á pallinum, það var svaka fjör. Svo eftir það keyrðum við að littlum læk þar sem fólk getur baðað sig. Það minnti mig svoldið á Elliðaárdal. Við þurftum að ganga svoldinn spotta eftir veginum og með fram honum voru endalausir könlulóavefir með risastórum köngulóm í. Stórar, svartar með gulum röndum á fótunum. Þann spotta sem við keyrðum vorum við enn á pallinum og þurtum alltaf að vera að beygja okkur til að forðast greinarnar. Síðan um kvöldið þegar við vorum að leggja af stað heim var mér boðið upp á snakk búið til úr svínaskinni. Ég sagði auðvitað bara "nei takk".
Ég fór með Estefany og vini hennar á tónleika. Fyrst var einhverskona hátíð þar sem gaurar á hjólum voru að sýna listir sínar og sumir voru frekar góðir. Síðan var verið að sýna bíla, fjórhjól og mótorhjól. Það var hægt að fá prufukeyrslu á flestum þeirra. Það var alveg svakalega heitt og ég hélt að það myndi líða yfir mig. Svo um kvöldið voru tónleikarnir. Margir mismunandi tónlistamenn komu fram og flestir voru reggie söngvarar en svo vöru líka nokkrir sem sungu salsa. Síðan var beðið um tvær stelpur sem sjálfboðaliða sem áttu síðan að dansa við tónlistina og svo átti fólkið að kjósa hvor væri betri og sú sem ynni fengi bol í verðlaun. Svo dönsuðum við með tónlistinni og það var svaka fjör.
Síðan fyrir svona viku fórum við á einhverja hátíð með tækjum, sölubásum og allskonar. Minnti mig svoldið á tívolí. Það var svo sem ágætt en þar sem ég var með mígreni var ég ekki mikið að fíla mig.
Svo átti amma mín og systir hennar afmæli um daginn. Systir mömmu minnar sem býr í bandaríkjunum kom í heimsókn með manninum sínum. Þá gat ég loksins talað ensku við einhvern annan en pabba minn, þótt ég sé að reyna að læra spænskuna er gott að taka smá pásu inn á milli. Það var rosa stuð og allir rosa kátir. Amma mín skemmti sér vel. Það var dansað, sungið og dansað meira. Eina lagið sem ég er farin að kannast við heitir "ella no lo quiere" sem þýðir "hún vill hann ekki". Systir mömmu minnar útskýrði fyrir mér að fólkið í Panama skipti sér í tvo hluta, suður og norður og mörg af lögunum eru til að niðurlægja hinn hlutann.
Svo næstu helgi erum við að fara á kjötkveðu hátíð í fimm daga. Þá förum við til Las Tablas, þar sem við vorum um áramótin. Það á víst að vera alveg svakalega gaman. Þetta er nokkurskona skrúðganga með lúðrasveit og svo verður sprautað vatni á alla. Og á kvöldin fara flestir á dískótek.
Ég tók alveg svakalega margar myndir af þessu öllu en svo, snillingurinn sem ég er, fannst mér eins og ég væri búin að setja myndirnar inn á tövluna mína en það var auðvitað ekki rétt svo ég eyddi öllum myndunum. En fjölskylda mín tók nokkrar myndir held ég svo ég fæ kannski nokkrar frá þeim.

Bless í bili


Löggubíll með útsýnisturni


Mjög lítið hús
Graðir gaurar: 81

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju mega nemendur ekki hafa litað hár?
2. Afhverju segir systir mín að við ætlum að fara að þrífa en um leið og ég byrja að vaska upp sest hún niður og gerir ekki neitt?
3. Afhverju veit enginn hvað mígreni er?
4. Afhverju ákveður fólk að gera eitthvað en hættir síðan við en lætur þig ekki vita?

5. Afhverju fá foreldrar mínir svona stutt sumarfrí?

No comments:

Post a Comment