Thursday, 14 February 2013

14 febrúar 2013

hæhæ allir, happy valentine's day :P

Hér kemur ítarleg lýsing af Carnivalinu í Las Tablas. Enjoy ;)



Dagur 1- miðvikudagur
Ég og Estefany mín þurftum að vakna klukkan fimm til að fá far með foreldrum okkar til Panama city til að taka rútu til Las Tablas. Við vorum báðar alveg rosa þreyttar en hvorug okkar náði að sofna í rútunni. Ferðin tók u.þ.b. 4 tíma og við stoppuðum einu sinni á leiðinni. Þegar við komum til Las Tablas náði afi okkar (pabbi pabba míns), en við áttum að gista hjá honum og ömmu. Restina af deginum tókum við því bara rólega og systir mín fór og lagði sig í nokkra tíma. Ég hefði gert það líka en þar sem við áttum að sofa í sama rúminu og systir mín var búin að breyða úr sér yfir allt rúmið var ekkert pláss eftir fyrir mig. Um kvöldið, svona klukkan níu, fórum við svo út og fórum niður á torgið. Ég var alveg að deyja úr þreytu, enda svaf ég bara í fjóra klukkutíma um nóttina. Við fórum að hlusta á lúðrasveit, en þær eru kallaðar „tuna“ á spænsku. Við vorum þar mest allan tímann en gengum líka aðeins um torgið. Ég var orðin svo þreytt að ég dróst bara á eftir Estefany og eftir að því er virtist heila eilífð fórum við heim. Þá var klukkan ellefu. Við höfðum bara verið þarna í tvo klukkutíma, en þetta voru tveir lengstu klukkutímar ævi minnar. Um nóttina var ég svo alltaf að vakna vegna þess að Estefany var alltaf að reyna að ýta mér útaf og ég svaf alla nóttina alveg við það að detta fram úr.


Einn af Tuna vögnunum


Dagur 2- fimmtudagur
Ég vaknaði klukkan tíu og fékk mér morgunmat og systir mín vaknaði klukkutíma seinna. Dagurinn var frekar rólegur, amma mín passar þrjú af barnabörnunum sínum á daginn, einn strák og tvær stelpur. Strákurinn heitir Kevin og stelpurnar Natalia og Daniela og þau eru öll algjörar dúllur. Við fórum að heimsækja bróður ömmu minnar sem býr í þorpi rétt hjá Las Tablas. Við sátum þar og spjölluðum við hann í smá tíma og svo fórum við heim. Restina af deginum var ég mest að lesa bók. Svo klukkan sjö fór ég með systur minni á hafnabolta leik, sem var mjög gaman því ég hef aldrei séð hafnaboltaleik áður. Þar hittum við vini Estefany og þegar leikurinn kláraðist klukkan ellefu fórum við á diskótek sem var kallað Revolution og við vorum þar til klukkan eitt. Þá fórum við heim vegna þess að afi okkar sagði að við mættum bara vera úti til hálf tvö.


Hafnabolta leikurinn milli Los Sentos og Metro

Dagur 3- föstudagur
Ég vaknaði klukkan níu og aftur vaknaði systir mín klukkutíma seinna. Þetta var líka mjög rólegur dagur. Amma mín passaði börnin aftur og við fórum að húsinu sem afi okkar á og sem við sváfum í um áramótin þegar við vorum í Las Tablas og mundum síðan gista í þegar foreldrar okkar kæmu daginn eftir. Við vorum þar í svona klukkutíma og börnin voru að leika sér í eltingaleik. Svo fór ég með ömmu minni og börnunum heim en Estefany varð eftir með afa. Þegar við komum heim fór ég aftur að lesa bókina mína og klukkan níu fórum við út. Í þetta skipti fórum við aftur á torgið og gengum þar um í nokkurn tíma og hlustuðum á tuna-in spila. Þar sá ég gaur með svalasta hár sem ég hef séð. Hann var með hanakamp og lítið skott. Síðan var hann búinn að lita hárið sitt sægrænt og svo voru svona eðlulappir út frá hanakambinum, líka sægrænar. Svo var skottið eins og skottið á eðlunni. Þetta var alveg geðveikt svalt. Fyrri hlutann af kvöldinu vorum við að hanga með vinum Xeniu, sem mér finnst eiginlega skemmtilegra en með vinum Estefany. Um kvöldið var byrjað að sprengja flugelda og það var alveg hræðilegt. Það sást ekkert í flugelana vegna reyksins og fólkið byrjaði að flýja burt frá torginu og lyktin var hræðileg og það kom ellingur af ösku yfir allt. Við flýðum inn í búðina sem var hliðina á okkur og fólkið sem var að vinna í búðinni kom og lokaði dyrunum. Svo þegar við héldum að þetta væri búið fórum við út og þá byrjuðu þeir að sprengja aftur. Ég fatta ekki alveg til hvers þeir eru að þessu en mér datt það í hug að þeir sæju hvað það var mikil þvaga á torginu og vildu aðeins minnka um hana.Síðan hittum við vinkonu Estefany sem er líka frá Chorrera og fórum með henni á diskótek sem var kallað PH sem stendur fyrir Pop Herrerano. Herrerano er einskonar fylki í Panama og það er líka nafn á einhverju áfengi hérna. Á leiðinni þangað hitti ég Fruzsi og systur hennar og spjallaði við hana í smá stund. Svo eftir diskóið fórum við að lappa um og skoða í sölubásum. Síðan fór vinkona Estefani á The Revolution en klukkan var næstum orðin hálf tvö svo við systir mín flýttum okkur heim og rétt svo náðum að koma á réttum tíma. Ég skildi reindar ekki afhverju það var svona mikið mál því afi okkar var hvort eð er löngu farinn að sofa.


Amma mín, Daniela og Natalia


Dagur 4- laugardagur
Þennan dag vöknuðum við systir mín á sama tíma og fórum á fætur. Nú var Carnivalið tæknilega rétt að byrja og við fórum um tíu leytið á torgið. Þar hittum við tvær vinkonur Estefany fórum að lappa um torgið með þeim. Eitt af einkennum carnivalsins er að það eru trukkar þarna og fólkið upp á þeim er að skvetta vatni á alla. Svo eru líka margir með vatnsbyssur. Svo koma vagnar með drottningunum og það er auðvitað passað að skvetta ekki vatni á þær en við systir mín og vinkonur hennar fórum í þvöguna sem gekk á eftir vögnunum og urðum allar rennandi blautar. Og svo var svo mikið fólk þarna að maður festist alveg öxl við öxl við næsta mann og allir voru að riðjast og troðast og ég var skít hrædd um að detta því þá hefði ég verið í vandræðum og hefði einfaldlega geta meitt mið því það var svo mikill troðningur. Síðan var verið að henda allskonar dóti úr trukkunum, bolum, brúsum, kútum o.s.frv. og ég fékk einn brúsann í hausinn. Síðan fékk ég einn bol sem lenti beint á bringunni á mér. Klukkan tvö fórum við heim aftur og fórum að pakka dótinu okkar vegna þess að nú voru foreldrar okkar að koma og við urðum að flytja okkur yfir í hitt húsið.  Og ég tók eftir því að ég var orðin alveg svakalega sólbrend út af öllu vatninu. Á öxlunum, hálsinum, bringunni, bakinu en andlitið slapp frekar vel vegna þess að ég var með make up. Svo eftir kvöldmatinn keyrðum við að húsinu og biðum eftir pabba og mömmu en þau komu svo klukkan hálf tíu. Um tíuleytið fórum við svo að torginu og vorum þar í svona hálftíma en fórum síðan í hús sem frændi pabba míns á. Þetta hús er í götunni þar sem torgið er og við vorum þar allt kvöldið. Þar hittum við marga vini og fjölskyldumeðlimi og skemmtum okkur með þeim. Systir mín fór með vinum sínum á diskótekið en ég vildi frekar vera áfram í húsinu vegna þess að mér fannst það einhvernveginn skemmtilegra. Það var meira framandi fyrir mér, diskóin voru bara eins og öll böllin í skólanum en í húsinu hjá frænda vorum við að dansa við panamísk þjóðlög þetta var svona ekta panamískt partý. Og svo voru drottningarnar þarna og eftir að hafa farið í hring á torginu komu þær eftir götunni okkar, svo við sluppum við að fara inn í þvöguna. En síðan var ég orðin frekar þreytt, vegna þess að við höfðum vaknað frekar snemma og hálf dottaði í stól inni í stofunni. Svo fórum við heim um tvö leytið. 


Einn af hommadrottningunum, svaka sætur :P

Dagur 5- sunnudagur
Ég var vakin klukkan níu og við fórum til ömmu og afa og fengum okkur morgunmat þar. Svo fórum við í hús frænda míns og horfðum á vagnana með drottningunum og á eftir þeim komu vagnar með tuna-liðinu. Og þess á milli spiluðum við panamíska tónlist og fólk dansaði og drakk og skemmti sér. Allir vildu fá mig til að dansa líka og á endanum tókst þeim að draga mig út ég dansaði með þeim. Vegna þess hvað ég var sólbrunnin passaði ég mig á því að vera í bol sem skýldi öxlunum en ég vildi samt reyna að fá smá lit á fæturna því þeir voru alveg hvítir eins og þeir voru þegar ég kom til panama. Og  að þessu sinni var ég ekki með make up svo ég brann náttúrulega á nefinu og kinnunum og jafnvel á enninu og eyrunum. Síðan hittum við bróður pabba míns, konu hans, Aivan og systur hans sem ég er búin að komast að því að heitir Sarabi. Ég spjallaði við hana um stund en svo fóru þau til að lenda í bununum og blotna og buðu mér að koma með en ég var að reyna að forðast sólina sem mest svo ég varð eftir. Svo komu þau aftur og spjölluðu við okkur í smá stund en fóru svo. Um fimmleytið fórum við aftur til ömmu og afa og fengum okkur að borða. Svo fórum við aftur í húsið. Mamma, pabbi og Estefany fóru að sofa og ég reyndi að sofna líka en gat það ekki svo ég fór bara að gera mig til fyrir kvöldið og fór svo að lesa bókina mína. Við fórum aftur um tíuleytið, vegna þess að þá koma drottningarnar og vagnarnir. Síðan voru þar líka nokkrar hommadrottningar. Þeir voru mjög mikið að fíla sig í kjólum og allskonar búningum. Mjög skemmtilegt allt saman. Við vorum í húsi frænda okkar og allir voru að drekka og dansa og skemmta sér. Systir mín fór aftur í diskóið með vinum sínum. En ég varð eftir og kynntist fullt af fólki og æfði mig aðeins í spænsku. Svo var þarna líka einn maður sem kunni aðeins ensku en hann hafði lært hana meðan hann var í hernum. Hann sagði mér að hann hafi verið mikið að hoppa út úr flugvélum í fallhlíf. Svo um tvö leytið fórum við heim. En ég svaf mjög illa vegna þess að alltaf þegar ég hreyfði mig í svefninum vaknaði ég því það var svo sárt vegna brunans.


Ein af drottningunum

Dagur 6- mánudagur
Um morguninn færði ég mig yfir á hliðina og glaðvaknaði af sársauka. Ég var fyrst að vakna svo ég lá bara í rúminu mínu og beið eftir að hin vöknuðu. Við fórum til ömmu og afa og borðuðum morgunmat þar. Ég hringdi í mömmu heim til Íslands til að geta kvartað aðeins yfir sárskaukanum sem var alveg að drepa mig, hann var alveg stöðugur, hvað sem ég gerði þá ætlaði skinnið mitt að rifna af. Svo fórum við í hús frænda og allt var bara mjög svipað og daginn áður. Það var tónlistarband fyrir utan húsið og allir voru að dansa við tónlistina. Þeir voru þar allan daginn. Svo kynnti ein konan mig fyrir dóttur sinni og systur dóttur.  Þær heita Maria og Alexandra. Maria var tvítug en Alexandra fimmtán ára. Ég var svoldið að spjalla við þær en þar sem spænskan mín er ansi takmörkuð og þær töluðu lítið sem enga ensku náðum við ekki að hafa langar samræður. Síðan kynntist ég líka tveimur strákum og talaði svoldið við annan þeirra vegna þess að hann kunni ágæta ensku þar sem foreldrar hans bjuggu í bandaríkjunum. Síðan kom bróðir pabba míns og fjölksylda og ég fór að tala við Sarabi. Við vorum að tala um það hvað það væru margar frekar feitar konur í algjörum míni stuttbuxum og magabolum eða bara enfaldlega í bikiníi. Okkur fannst það frekar hallærislegt.  Síðan fórum við heim til ömmu og afa að borða um sexleytið og svo heim að sofa, en ég náði aftur ekki að sofna. Um tíuleytið fórum við til frænda. Systir mín, pabbi og mamma fóru að skoða vagnana en ég vissi að þeir myndu síðan koma fram hjá húsinu okkar og nennti ekki að fara inn í þvöguna á torginu svo ég varð eftir og fór bara að spjalla við fólkið. Ég er að taka eftir því að ég er að bæta mig aðeins í spænsku og er ansi stolt af mér. Svo vorum við að dansa og allir voru að hrósa mér fyrir að vera fljót að læra dansana. Svo þegar einn vagninn var að keyra fram hjá var hann of breiður fyrir þessa litlu götu og festist og var fastur þarna í svona 15-20 mín. En á endanum komst hann áfram. Um þrjúleytið fórum við síðan heim og aftur átti ég mjög erfitt með að sofa.


Þarna er verið að sprauta vatni á fólkið

Dagur 7- þriðjudagur
Þetta var seinasti dagur carnivalsins og við vöknuðum eins og venjulega og fengum okkur morgunmat hjá ömmu og afa.  Síðan fórum við aftur í hús frænda okkar og vorum þar allan daginn. Þennan dag var ég ennþá að drepast út af sólbrunanum, svo var ég líka með svakalegt mígrenikast og ekki bætti úr skák að ég var líka með hræðilega túrverki. Svo fyrrihluta dagsins sat ég bara inni í stofu í geng, en svo hugsaði ég með sjálfri mér að þetta væri síðasti dagurinn og ég gæti ekki eytt honum inni í stofu svo ég fór út og fór að dansa með fólkinu. Bandið var aftur fyrir utan húsið og það var svaka stuð. Ég fór aftur til Mariu og Alexöndru og var með þeim og mömmu Mariu. Og þau létu mig dansa alveg helling. Svo kom maðurinn sem var í hernum, sem heitir José, og gaf mér fjöður sem hafði dottið af einum vagningum og sagði mér að geyma hana sem minjagrip. Svo komu Sarabi og þau hin og ég spallaði svoldið við hana. Hún spurði mig hvort ég hefði séð einhverjar feitar konur í fáránlegum fötum og ég hafði þá séð nokkrar. Svo spjölluðum við um allt milli heima og geyma þar til þau fóru. Svo fórum við um fjögurleytið. Og aftur fóru þau að sofa en ég var vakandi að gera mig til fyrir kvöldið. Þetta kvöld fórum við snemma út eða um sjöleytið, vegna þess að það var einhver sérstakur þjóðbúningadagur. Margir voru í þjóðbúningnum eða í skyrtum sem líktist honum og með skraut í hárinu og hálsmen og armbönd sem eru hluti af búningnum. Ég vildi vera í þæginlegum skóm svo ég fór í kawasaki skónnum mínum og mamma mín varð pirruð út í mig því henni finnst þeir ljótir en samt hafði hún ekki sagt neitt um það hina dagana, því ég var í þeim á hverjum degi. Svo fannst henni skórnir sem pabbi minn var í líka hræðilegir og skipaði honum að skipta en ég neitaði því, því hún vildi að ég færi í skó sem eru hræðilega óþæginlegir og hreinlega meiða mig. Svo þegar við fóru út var hún að segja við alla hvað hún væri pirruð út í mig og spurði alla hvort þeim finndust skórnir mínir ekki hræðinlegir. Fólkið varð mjög vandræðanlegt og vissi eiginlega ekki hvað það ætti að segja. Þegar við komum á torgið spurði pabbi minn hvort ég vildi ekki fara og bíða í húsi frænda okkar meðan hann færi að dansa í einhverri skrúðgöngu með mömmu og ég gerði það, en þar sem enginn var þar leiddist mér svo ég fór aðeins að ganga og fór þangað sem sölubásarnir eru. Þar fór ég að tala við einn af gaurunum sem voru að selja fullt af heimatilbúnum skartgripum, en ég hafði hitt hann þegar ég var með Estefany og vinkonu hennar, og svo var þarna líka kona að selja með honum. Í fyrstu var gaurinn ekki þarna en ég fór að spurja konuna hvað sumir hlutirnir kostuðu og hún sagði strax „Vá, þú talar spænsku“ og bætti síðan við „þú er ekki héðan er það“ ég sagði nei ég er frá Íslandi og hún spurði „Íslandi, hvar er það“ og ég sagði að það væri rétt hjá Danmörku og þá spurði hún „ hvar er Danmörk“ og ég varð alveg bit. Ég er von að fólk spyrji hvar Ísland sé en þetta var í fyrsta skipti sem einhver vissi ekki hvar Danmörk væri. Svo ég sagði að Danmörk væri rétt hjá Þýskalandi og þá fór hún að átta sig á þessu og í því kom gaurinn og heyrði hvað við vorum að tala um og bætti við að það væri í Evrópu. En ég var asni stolt vegna þess að henni fannst ég tala góða spænsku, en venjulega segir fólk að ég þurfi að læra betur spænsku. Síðan sneri ég aftur að húsinu til þess að vera ekki of lengi í burtu. Þetta kvöld vildi Estefany fara aftur á diskóið eins og öll hin kvöldin en í þetta sinn bannaði pabbi henni það því að í rauninni var hún of ung til að vera þar. Hún varð alveg svakalega pirruð og talaði ekki við pabba meirihlutann af kvöldinu. En samt fékk hún að fara að hitta vini sína meðan pabbi keyrði mömmu á rútustöðina vegna þess að hún þurfti að fara í vinnuna morguninn eftir, en ég varð eftir í húsinu og spjallaði við fólkið. Svo var ég að dansa ein á götunni við tónlistina og það voru alveg hellingur að gaurum að stara á mig og sumir komu og reyndu að dansa við mig en mér fannst það frekar óþæginlegt því ég þekkti þá ekki neitt. Svo var þarna stelpa sem ég man ekki alveg hvað hún heitir en ég man að seinna nafnið hennar er Melissa. Hún talar ágæta ensku vegna þess að hún fór til Englands með hópi frá Panama til að læra tungumálið. Við töluðum heillengi saman um hvað sem er og síðan þurfti hún að fara. Síðan fórum við heim um tvöleytið en pabbi minn sagði að um fimmleytið væri síðan flugeldastríð milli beggja tuna-vagnanna og sagðist ætla að fara með Estefany og spurði hvort ég vildi líka koma og ég sagði bara „já“. En síðan þegar hann vakti mig spurði hann aftur hvort ég vildi koma með og sagði að þetta væri mjög hávaðasamt og ég mundi strax eftir flugeldunum frá því um kvöldið og ákvað að verða eftir.


hérna er drottning drottninganna, Ana Gabriela í þjóðbúningnum með kórónuna

Dagur 8- miðvikudagur
Ég vaknaði þegar pabbi minn og Estefany komu aftur um sjöleytið og þau fóru beint að sofa en ég var þá alveg glaðvöknuð. Ég lá aðeins upp í rúmi en fór síðan á fætur og fór að gera mig tilbúna fyrir daginn. En ég var hætt að geta verið í brjóstahaldara vegna brunans, húðin var farin að detta af á öxlunum og ég var komin með sár og blöðrur. Þetta var alveg hrikalega sárt. Síðan þegar pabbi minn vaknaði vakti hann Estefany og sagði að við ætluðum að fara í þorpið þar sem mamma mín hafði alist upp í, en það er í svona klukkutíma fjarlægð frá Las Tablas. Þegar við komum þangað fórum við í heimsókn til konu sem ég veit eiginlega ekki hver er. Svo fórum við að kaupa morgunmat og mættum tveimur mönnum á hestbaki sem pabbi minn þekkti og þegar við fórum til baka til konunnar voru hestarnir þar bundnir við tré. Síðan borðuðum við og þegar við vorum að fara ákvað ég að fara aðeins að tala við hestana og einn af mönnunum sagði við pabba minn að það væri greinilegt að ég kynni að umgangast dýr vegna þess hvernig ég nálgaðist hestana og pabbi minn sagði honum að ég ætti nokkra hesta heima á Íslandi. Síðan á leiðinni heim í húsið komum við við hjá Ivan, bróður pabba míns, og ég var að tala við Sarabi þegar pabbi minn spurði hvort ég vildi koma með heim í húsið og leggja mig eða vera kyrr og spjalla við Sarabi. Þar sem ég var ekki þreytt sagðist ég ætla að verða eftir. Svo fóru pabbi minn og Estefany, en hún kom síðan strax aftur. Síðan sátum við fjögur, ég, Sarabi, Estefany og Aivan og töluðum saman. Svo vildi Estefany leggja sig svo hún fór inn í herbergi að leggja sig og Aivan fór í tölvuna. Ég og Sarabi héldum áfram að spjalla og allt í einu leit ég á klukkuna og hún var orðin fjögur. Þegar við komum hafði klukkan verið eitt, en ég sagði ekkert og hélt áfram að tala. Við töluðum um vini mína heima á Íslandi og vini hennar og hvað sumir af mínum vinum væru líkir sumum af hennar vinum. Síðan fórum við að tala um hryllingsmyndir. Henni fynnst þær ekki skemmtilegar og vill frekar horfa á drama myndir. Síðan leit ég aftur á klukkuna og þá var hún orðin sex. Ég varð alveg hissa, mér fannst svona sirka fimm mínútur síðan ég hafði litið á klukkuna og hún verið fjögur. Ég sagði Sarabi að klukkan væri sex og hún trúði mér ekki og leit á símann sinn og sá sirka tíu skilaboð frá kærastanum sínum og að klukkan væri virkilega sex. Okkur fannst aðeins eins og einn eða tveir tímar síðan ég kom til þeirra. Og Estefany sofandi allan tímann. Síðan kom pabbi minn og við borðuðum kvöldmat og svo sátum við úti á veröndinni og töluðum saman, ég, Sarabi, Aivan, Ivan og pabbi. Svo fór ég að leika við hundinn þeirra sem heitir Crazy. Svo vaknaði Estefany og fór í tölvuna. Síðan fórum við að tala um verðmuninn hér og heima á Íslandi og þau ætluðu ekki að trúa mér þegar ég sagði þeim hvað skór kostuðu á Íslandi. Síðan um tíuleytið fórum við heim að sofa, ég veit ekki hvenar Estefany sofnaði en þegar við vöknuðum og ætluðum að leggja af stað heim var hún mjög úrill.


Annar hesturinn, frekar þreyttur í hitanum

Vona að þið hafið haft gaman af því að lesa þetta :D
Þangað til næst 
Bæbæ

Graðir gaurar: 100

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju er ég sú eina sem brann svona illa, systir mín er líka frekar hvít?
2. Afhverju klæðast feitu konurnar svona fáránlegum fötum?
3. Afhverju var verið að sprengja flugelda sem enginn gat séð?
4. Afhverju er ekki hægt að kaupa venjulegan ost?
5. Afhverju eru allir alltaf að rífast?









No comments:

Post a Comment