Sunday, 9 December 2012

9. Desember 2012

Hæhæ

Ég bakaði sörur, er ekkert smá stolt af mér. Og öllum finnst þær rosa góðar.
Fyrir svona viku fór ég með systrum mínum og frænku í Westland mollið og við lentum í smá umferð. Við þurftum að komast inn í röðina og á endanum varð systir mín orðin svo þreytt á að bíða eftir að einhver hleypti okkur inn að hún leit í spegilinn og losaði hárið sitt úr tagli og rendi niður rúðunni. Henni var strax hleypt inn í röðina af einhverjum gaur sem síðan sendi henni fingur koss. Þetta var bara nokkuð flott.
Síðan síðasta þriðjudag fór ég með Xeniu, Annie og vinkonu þeirra að sjá 'Breaking dawn' og það var rosa gaman, fengum okkur að borða fyrst og svo að sjá myndina. Bíóið í Westland var lokað svo við þurftum að fara alla leið til Panama city en það var allt í lagi, ég fór hvort eð er ekki í skólann næsta dag.
Á föstudaginn fór ég í veislu hjá vinnu mömmu minnar, held ég, í tilefni mömmudagsins sem var í gær. Og þar vorum við dætur mæðranna að aðstoða, dreifa gjöfum og svoleiðis. Það var bara rosa gaman og svo var tískusýning þar sem nokkrar dætur voru módelin. Og þetta voru bara ágæt föt í svona skrifstofu vinnu stíl. Og svo nokkrir ballkjólar.
Svo í gær var mömmudagurinn. Ég fór snemma með pabba mínum út í búð og þar keyptum við í matinn og ég keypti í sörurnar. Svo eyddum ég og pabbi minn öllum deginum í eldhúsinu, hann að elda kvöldmat og ég að baka sörur. Fjölskyldan kom í heimsókn og voru syngjandi og dansandi allan daginn. Og frænkur mínar voru endalaust að næla sér í sörurnar mínar áður en þær voru tilbúnar. Svo fóru flestir en sumir voru eftir í mat. Svo eftir matinn fórum við að skreyta jólatréð, sem mér finnst frekar snemmt.
Í dag kláruðum við að skreyta húsið og svo fórum við að mála veggina í einu gestaherberginu bleika. Það var frekar skemmtilegt.
Og núna seinni partinn fórum við í kveðjupartí hjá Annie því hún er að fara aftur til Alaska. Það var alveg svaka gaman. Einn af gaurunum sem voru að reyna við mig í óvæntu heimkomu Annie, þessi sem var frekar skemmtilegur og hann heitir Joel, var þar og var að spila borðtennis með öðrum gaurum og svo bauð hann mér að prófa. Ég hef ekki spilað borðtennis síðan ég var á spáni og var frekar riðguð en þetta rifjaðist upp frekar fljótt. Svo vildi Estefany spila við mig og svo einn af gaurunum og svo litla stelpan sem var alltaf að týna upp boltann þegar hann fór út af og svo litli strákurinn sem var líka að týna boltann upp. Svo vildi mamma mín taka fjölskyldumyndir með Annie, bara fjölskyldan, ég, Xenia og Estefany, og svo hún og pabbi. Svo fóru mamma mín og pabbi og við systurnar vorum aðeins lengur. Eftir það var frekar rólegt en þau voru að spila salsa tónlist og ég sagði við vinkonu okkar, sem heitir Eva, að mig langaði að læra salsa. Og hún sagði við pabba Annie að mig langaði að dansa svo hann bauð mér í dans og við dönsuðum og reyndum að tala saman á spænsku. Svo fór hann svo ég var ein eftir að dansa og þá kom Joel til mín og bauð mér líka í dans. Ég veit ekki hvað við dönsuðum lengi en það var geðveikt gaman og svo töluðum við líka saman og hann var alltaf að segja við alla að ég væri kærastan hans og að við værum crazy in love. Svo sagði hann að hann ætlaði að fara til Íslands. En hann er rosa fyndinn og skemmtilegur.
Svo fór ég með systrum mínum og Evu og við fórum fyrst heim til hennar að ná í eitthvað dót og svo fórum við í eitthvað annað partý en ég og Estefany áttum að bíða í bílum, veit ekki afhverju, en þetta voru bara 15 mín.
Svo þegar við komum heim var ég orðin rosa þreytt en ég ákvað samt að skrifa þetta blogg, vegna þess að ég er svo montin af sörunum :P

Þangað til næst.

P.s. ég gleymdi að setja það inn í síðasta blogg að það var alveg svaka flóð hérna í borginni minni. Allt á bólakafi og nokkrir dánir. Af þeim látnu voru tvo börn. Ég sá aldrei flóðið með eigin augum en það voru alveg endalausar fréttir af því. Þetta var alveg svakalegt.



Jólatréð


Þau sögðu mér að mála, en þau sögðu ekki hvað ég ætti að mála :P


Ég og Joel að dansa :D


Graðir gaurar: 44

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju byrja þau svona snemma að skreyta fyrir jólin?
2. Afhverju má ég ekki segja foreldrum mínum að við fórum til Panama city til að sjá Breaking dawn?
3. Afhverju halda allir að ég sé svona mikið eldri en ég er?
4. Afhverju finnst vinum mínum ég vera með fallega hendi?
5. Afhverju er allt svona ódýrt hérna?

Monday, 26 November 2012

26. nóvember 2012

Hæjjj allir,

Það er búið að vera frekar lítið að gera frá því að ég skrifaði seinast. Vakna, fara í skólann, koma heim, finna mér eitthvað að gera, fara að sofa og svo vakna..... Ekkert merkilegt en þetta er víst líf unglinga í Panama. En ég er ekki að kvarta það er bara ekki venjan að fara út að hitta vinina á virkum dögum.
Það kom stelpa hingað í gær sem heitir  Annie, ég held að hún sé frænka mín, en hún er búin að vera í sex mánuði í Alaska að læra. Svo fórum við með henni til fjölskyldu hennar sem vissi ekki að hún væri komin. Hún vildi koma þeim á óvart. Fyrst fórum við til mömmu hennar í vinnuna hennar og hún varð ekkert smá hissa og glöð. Svo kom pabbi hennar og hann brast bara í grát hann varð svo glaður að sjá littlu stelpuna sína. Svo komu bræður hennar og vinir fjölskyldunnar og þetta varð svona óvænt heimkomu partý. Ég veit ekki hvað margir gaurar voru að reyna við mig en þeir voru þó nokkrir, og einn þeirra var alveg ágætur. Fyndinn og skemmtilegur. Svo fóru þeir í sjokk þegar þeir heyrðu að ég væri bara 17 ára.
Svo keyrðum við um bæinn og heimsóttum vini hennar og fjölskyldu. Þetta var bara rosa gaman og þar sem hún hafði verið í Alaska kunni hún ágæta ensku.
Næstu helgi ætlar vinkona mín sem er líka hérna með AFS en ekki sem skiptinemi heldur sjálfboðaliði að koma í heimsókn vegna þess að hún er að fara 6. desember.
Mér finnst ég vera svo þroskuð miðað við bekkjarfélaga mína og systur mína sem eru á sama aldri og ég. Fyrir nokkrum dögum fóru t.d. bekkjarfélagar mínir í pappírs slag, sem er eins og snjóstríð nema með pappír. Ég gat ekki annað en hlegið að þeim.
En eins og ég sagði er búið að vera frekar rólegt og ég hef ekki mikið annað að segja og fjölskylda mín er að segja mér að slökkva á tölvunni vegna þess að það er rigning úti. Þessi hræðsla við rigninguna er ekki eðlileg.

Bæjjó spæjjó

                                                       Mamma Annie var mjög glöð að sjá hana



                                                   Bekkjarfélagar mínir í pappírs slag


                                                       Ég þegar ég sá hvað þau voru að gera
Graðir gaurar: 37

Spurningar bloggsins:
1. Afhverju geta nemendur ekki tekið símana sína með sér í skólann, Ipota eða myndavélar en þeir meiga taka með sér tölvurnar sínar og þau geta tekið myndir með webcam, farið á netið og spjallað við fólk og hlustað á tónlist í tímum?
2. Getur einhver sagt mér hvernig þessi talnaruna meikar sence, 1=2, 2=4, 3=6, 5=10, 10=20, 15=35?
3. Afhverju geta nemendur ekki haft sína síma en kennararnir geta talað í símana sína alla kennslustundina?
4. Afhverju er hættulegt að hafa kveikt á tölvunum þegar það er rigning úti?
5. Afhverju förum við í sumarfrí um jólin?

Sunday, 11 November 2012

11. nóvember 2012

Hola, hæhæ, สวัสดี,

Koi er farin heim. Flugið hennar fór núna kl 7. Ég, Fruzi, Mike og þrír aðrir skiptinemar fórum að kveðja hana á flugvellinum. Pabbi minn keyrði okkur. Við náðum í Fruzi að húsinu hennar sem er hérna rétt hjá okkur og svo ætluðum við að sækja Amarens. Hún sagði okkur að ná í sig hjá El Rey í bænum þar sem hún býr en þegar við komum þangað var hún ekki þar og svaraði ekki símanum sínum. Ég held að við höfum reynt svona 20 sinnum í heima símann hennar en hann var alltaf upptekinn. En allavegana, meðan við vorum þarna að reyna að ná í Amarens sáum við Mike og annan skiptinema og ákváðum að spyrja þá hvort þeir vissu um Amarens, þeir vissu ekki hvar hún var en þeir voru á leiðinni á flugvöllinn svo við ákváðum að gefa þeim far. Svo þegar við komum á flugvöllinn hringdi svo annar skiptinemi í Mike og ákvað svo að koma líka með enn öðrum skiptinema. Svo þurftum við að bíða eftir Koi því gaurinn frá AFS sem sótti hana var svo seinn. En svo þurftum við að segja bæ við Koi sem var mjög erfitt en annars var bara gaman þarna á flugvellinum, svoldið svona eins og AFS fundur á flugvellinum. Svo keyrðum við hina skiptinemana á Albrook og svo lögðum við pabbi minn, Fruzi og ég af stað heim. Og aumingja Amarens ætlaði að reyna að hitta okkur á flugvellinum en kom síðan rétt eftir að við fórum.
Á föstudaginn hélt bekkurinn okkar kveðjupartý fyrir Koi. Það var rosa sætt af þeim. Þau komu með köku, nammi, snakk, gos og hrísgrjón. Er það bara ég eða er eitthvað sem passar ekki beint inn?? En það var rosa gaman. Við sungum og dönsuðum og meira að segja kennararnir voru bara að hanga með okkur í stað þess að reyna að kenna okkur eitthvað. Allir skrifuðu svo eitthvað á skirtuna hennar Koi og mér finnst það svo frábær hugmynd að ég held að ég muni stela henni þegar ég fer heim. Svo þegar við byrjuðum á kökunni skelltu þeir andlitinu á Koi ofan í kökuna. Eitthvað í sambandi við að taka fyrsta bitann. En þetta var rosalega vel gert hjá þeim og Koi var voða ánægð.
Í gær fór ég með systur minni á einhverja hátið í tilefni Panamíska þjóðbúningnum. Þar tókum við þátt í skrúðgöngunni og í miðri þvögunni hitti ég Astrid, bekkjarsystur mína, og var með henni restina af göngunni. Hún lét mig dansa og klappa allan tímann og ég get svarið að mér hefur aldrei orðið svona heitt á ævinni. En sem betur fer gat Astrid bjargað lífi mínu með vatni því ég átti engann pening. Astrid sagði mér líka að Koi væri þarna einhversstaðar og mig langaði svo að hitta hana og leitaði út um allt en fann hana hvergi. Eftir gönguna fór ég með systur minni á Feria sem ég sá ekki alveg tilganginn með því við vorum bara þarna og gerðum ekki neitt. Svo finnst mér líka frekar skrítið á þessum hátíðum hérna að fólkið er allt drekkandi eins og t.d. á menningarnótt á Íslandi en þetta er allt um miðjan dag. Það er hálf fyndið að sjá allt þetta drukkna fólk um miðjan dag syngjandi og gólandi.
Núna þegar sumarfríið byrjar er ég að fara að læra á gítar og að dansa salsa. Svo ætlar pabbi minn að fara að kaupa saumavél svo ég get farið að sauma aftur. Svo ætlar fjöslylda mín að ferðast með mér um Panama svo ég ætti að hafa nóg að gera í sumarfríinu mínu yfir jólin. Og svo ætla ég líka að láta reyna á mína stórkostlegu eldunarhæfileika og gera möndlugraut fyrir fólkið og sjá hvernig þeim líkar hann, ef hann verður ætur.
Þangað til næst

Chao, bæbæ, ลาก่อน

Graðir gaurar: 48

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju finnst fóki skrýtið að borða spaghetti með tómatsósu?
2. Hvers vegna er panamískt fólk alltaf seint?
3. Hvers vegna er öllum sama þótt þeir séu seinir?
4. Afhverju eru svona margir villi hundar?
5. Afhverju eiga allir hunda en enginn vill eiga ketti?

                                                       
                                                          Kveðjupartýið hennar Koi                                                


                                                    Koi eftir að stinga antlitinu ofan í kökuna


                                               Fólk að skrifa á skirtuna hennar Koi


Wednesday, 7 November 2012

7. nóvember 2012

Halló allir,

Heimurinn er fullur af ósanngjörnu fólki. Fólki sem finnst rosa gaman að níðast á minni máttar og þannig sýna veldi sitt. Þá er ég aðalega að tala um framkvæmdarstjóra AFS í Panama en hann ætlar að senda Goi heim næsta sunnudag, sem þýðir að hún er að fara eftir fjóra daga. Ég er að vona að fjölskylda mín leyfi mér að fara með henni á flugvöllinn.
Síðasta sunnudag fór ég með fjöslkyldu minni á ströndina og við gistum þar eina nótt. Og þegar ég segi með fjölskyldu minni meina ég nánast allri fjölskyldu minni. Ég var nánast étin lifandi af moskítóflugum, bara á leiðinni á ströndina. Ekki um nóttina heldur aðeins á þessum fimm mínútum sem það tók mig að labba niður á strönd, 29 bit, fimm mínútur. Svo fór ég á hestbak á ströndinni og þetta var í fyrsta og eina skipti sem ég fer á hestbak í pilsi. Svo var maðurinn með hestinn svo hrikalega vondur við hann. Ég sver að hesturinn hrökk við í hvert sinn sem hann heyrði röddina hans. Og svo var hann alltaf að slá greyið dýrið.
Það var að koma í ljós að ég get ekki farið á fótbolta leikinn svo ég verð að reyna að selja miðann minn.
Næsta laugardag verð ég að klæðast Panamískum þjóðbúningi og dansa við einhverja tónlist og svo 28. nóvember verð ég svo að vera í íslenska þjóðbúningnum, sem ég var að sauma, í skrúðgöngu skólans. En ég þarf semsagt að ganga niður einhverja endalausa götu í steikjandi hita ásamt öllum hinum skólunum í La Chorrera.
Ég held að allur skólinn muni gráta þegar Goi fer, allir elska hana. Svo er ég búin að ákveða að fara að safna peningum þegar ég kem heim til íslands og fara og heimsækja hana.
Nóg í bili,

Bæjjó :D

Graðir gaurar: 33

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju er ég alltaf þreytt?
2. Afhverju er öllum sama þótt þeir mæti of seint í tíma?
3. Fyrst það er bannað að vera málaður í skólanum, afhverju gera kennararnir ekki neytt þótt stelpur máli sig í tíma?
4. Afhverju eru allir svona vondir við dýrin?
5. Hvernig get ég verið svona fljót að eyða peningum þegar allt er svo ódýrt hérna?

Monday, 29 October 2012

29. október 2012

Hæhæ,

Í dag á mamma mín hérna afmæli. Við ætlum að fara út að borða og halda upp á það. Ég teiknaði handa henni kort, sem ég verð að segja að hafi tekist nokkuð vel til þótt ég segi svo sjálf. Svo ætla ég að gefa henni gjöf líka sem ég hef ekki ennþá haft tíma til að gera, því ég má ekki fara neitt ein. En pabbi minn ætlar að redda mér.
Í dag fórum við í ensku próf í skólanum og ég get svarið að þetta hefði ekki getað verið auðveldara. Ég var í svona tvær mínútur að leysa það, en öllum fannst það sjúklega erfitt. Svo voru líka heilmargar villur í prófinu sjálfu en ég nennti ekki að leiðrétta kennarann.
Mér finnst líka svoldið furðulegt við skólann að þau beinlínis loka okkur inni. Það eru hlið á skólanum sem eru lokuð meðan skólatíminn er og þú mátt aðeins fara út ef þú ert veikur og búinn að fá leyfi frá skólastjóranum um að fara heim. Við erum kannski búin í skólanum, það eru ekki fleiri tímar og okkur er hreinlega bannað að fara fyrr en skólatíminn er búinn. Eins og t.d. daginn sem við vorum ekki í neinum tíma, við urðum bara að hanga og gera ekki neitt þar til klukkan varð 12:40. Þessi skóli er alveg rosa brenglaður.
Núna 14. nóvember er ég að fara á fótbolta leik: Panama vs Spain. Hlakkar rosa mikið til, það verður örugglega rosa stemming. Fólkið hérna í Panama er rosalega hrifið af fótbolta. Ég veit hins vegar ekki hvort ég eigi að halda með Panama eða Spáni. Venjulega myndi ég halda með Spáni en langar ekki að móðga fjölskyldu mína með því að halda ekki með Panama, því þau eru svo miklir fótbolta aðdáendur og mjög stolt af sínu liði. Ætli ég verði ekki bara í rauðu, sem er litur beggja liðanna, og hvetji þau bæði. :D
Ég er búin að vera að tala svo mikið á ensku og spænsku að mér er farið að finnast skrýtið að tala íslensku t.d. við foreldra mína og vini.
Segjum þetta gott,

Bæbæ

Graðir gaurar: 21

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju er ég alltaf svöng?
2. Afhverju borða allir hrísgrjón og kjúkling að minnsta kosti einu sinni á dag?
3. Hef ég hitt þessa manneskju áður?
4. Afhverju tala sumir ekki við mig í skólanum en þegar við erum á fb hætta þeir ekki að blaðra?
5. Afhverju setja þau salt á allt, salat, egg, brauð og bara allt?

Tuesday, 23 October 2012

23. október 2012

Halló allir,

Ég er búin að komast að því á undan förnum dögum að ég hefði ekki getað verið heppnari með fjölskyldu. Þau standa með mér sama hvað gerist og gera allt sem þau geta til að hjálpa mér. Ég veit ekki hvernig ég hefði lifað af síðustu daga án þeirra. Mér finnst ég vera alveg rosalega heppin og ég verð þeim ævinlega þakklát fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mig.
Hérna í Panama er alltaf jafn heitt, eitthvað sem ég á ekki beint eftir að sakna þegar ég fer heim. Systur mínar, Estefany og Xenia, sáu mynd af öðrum skiptinemum frá Gorgona strönd og á þeirri mynd voru Mike frá Bandaríkjunum og Olle frá Þýskalandi. Þeim fannst þeir svo sætir og vilja endilega að ég kynni þær fyrir þeim.
Í skólanum gerum við alltaf jafn lítið. Á föstudaginn fórum við t.d. ekki í neinn tíma. Ég ætlaði að byðja foreldra mína að leyfa mér að vera heima þann dag og þegar ég hugsa til þess þá hefði ég átt að gera það. Margt hefði geta farið allt öðru vísi ef ég hefði ekki mætt í skólann.
Ég hef í rauninni ekki margt að segja að þessu sinni. Mig langaði bara allt í einu að skrifa blogg. Í næsta bloggi mun ég örugglega hafa fleira að segja.

Bæjjó spæjjó :P

P.s. mér finnst að ég þurfi aðeins að útskýra "graðir gaurar" betur. Það eru sem sagt bílstjórar eða fólk úti á götu sem ég þekki ekki neitt.

Graðir gaurar: 15

Spurningar bloggsins:

1. Hvernig getur einhver átt kærasta í eitt ár og fimm mánuði án þess að kyssa hann?
2. Afhverju talar enginn ensku, þótt þau hafi lært jafn lengi og ég?
3. Afhverju vilja svo margir klippa á sér hárið en enginn gerir það?
4. Afhverju megum við ekki vera með naglalakk í skólanum?
5. Afhverju getur enginn borið nafnið mitt fram?

Thursday, 18 October 2012

18. október 2012

สวัสดี, borið fram sa-wai-dee :P

Mér finnst greinilega ekki nóg að læra spænskuna svo Koi (það er ekki skrifað Goy) er farin að kenna mér tælensku, hehe :P
Ég, Fruzsi, Amarens og nokkrir aðrir skiptinemar hittumst í þessari viku fyrir orientation á Gorgona beach. Það var geðveikt gaman. Á daginn vorum við með prógramm og í frítímanum fórum við á ströndina. Og á nóttunni vorum við með partý. :D Það sem meira er, þá voru nokkrir sjálfboðaliðar hjá AFS að partý-ast með okkur. Þannig að við sváfum ekki mikið þessar tvær nætur sem við vorum þarna. :D Seinni nóttina svaf ég alls ekki neitt. Um kvöldið stukkum ég og Grace, frá USA, út í sundlaugina í öllum fötunum. Sem betur fer hafði ég vit á því að taka úrið mitt af mér áður en ég fór úr íbúðinni okkar, annars hefði ég örugglega gleymt að taka það af mér. Seinna um morguninn þegar allir voru farnir að sofa fór ég svo aftur út í, því ég var alls ekkert þreytt. :) Svo fór ég að ströndinni og horfði á sólar uppkomuna.
Það er frekar fyndið, og ég tók eftir þessu fyrir þó nokkru, að ég er farin að hugsa á ensku. T.d. hugsaði ég fyrir fram öll bloggin á ensku áður en ég skrifaði þau á íslensku. Hins vegar finnst mér spænskan koma frekar hægt hjá mér. :S Ég þarf að fara að æfa mig meira.
Ég er að hugsa um að fara að æfa salsa dans hérna, annars á ég eftir að verða svo feit. Sumir segja að ASF standi fyrir another fat student og ég get sagt að það sé rétt hjá þeim. Fruzsi og Amarens segja það líka.

Ég hef ákveðið, bara svona til að gera þetta aðeins skemmtilegra, að telja hvað það eru margir graðir panamískir gaurar hérna :P
So far: 7 graðir

Og svo langar mig að skrifa niður 5 spurningar um Panama í hverju bloggi.
1. Afhverju er fólkið hrætt við rigninguna?
2. Afhverju eru allir með langar neglur, líka strákarnir?
3. Afhverju mæta kennararnir ekki í tíma?
4. Afhverju koma kennararnir í tíma, lesa okkur upp og fara svo?
5. Afhverju gerum við ekkert í tíma jafn vel þótt kennarinn komi?

Bæbæ, í tælensku: ลาก่อน og borið fram: la-gone :P

Wednesday, 10 October 2012

10. octóber. 2012

Hola everybody!!

Hérna í Panama er ennþá rosa gaman, ég finn ennþá ekkert fyrir þessari svaka heimþrá sem á að koma núna á næstu vikum. Ég hef ekki áhyggjur af því, reyndar hef ég frekar áhyggjur af því að tíminn er of fjlótur að líða. Ég meina það er nú þegar liðinn einn mánuður. Bara 10 eftir. :(
Í gær fór ég með Goy og Amarenz til Panama city til að kaupa miða á fótboltaleik, Panama vs Spain, í nóvember. Við ætluðum líka að fara í Albrook, sem er eitt af mollunum í Panama. En þar sem við fórum ekki heim eftir skóla til að skipta um föt fengum við ekki að fara inn. Engir skólabúningar leifðir nema í fylgd með fullorðnum. Ég fatta þetta ekki, fyrst eru þau að troða okkur í þessa skólabúninga og svo megum við ekki vera neins staðar í þeim.
Ég og Goy erum orðnar rosa góðar vinkonur og ég er strax farin að kvíða fyrir því þegar hún fer. Hún er búin að vera hérna í 7 mánuði og fer því í janúar. En við erum búnar að ákveða að ég fari og heimsæki hana til Thailands og hún komi í heimsókn til Íslands. Og mamma, núna er ég komin með tvöfalda ástæðu til að fara til Hollands þegar ég kem heim. Bæði til að hitta Liesbeth og þau hin frá Amsterdam og til að hitta Amarenz aftur. :D
Næsta mánudag er ég að fara hitta alla hina frá AFS og við verðum á ströndinni í þrjá daga að tana 8-) Það verður rosa gaman, en pabbi minn sagði að ég þyrfti að fara rosa varlega á þessari strönd af því að fólk væri oft að deyja þarna. Ég sagði honum að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, ég bjarga mér. :P
Ég er að hugsa um að taka yfir ensku tímana í skólanum. Ég þarf að halda aftur af mér í hverjum einasta tíma svo ég leiðrétti ekki hvert einasta orð sem kennarinn segir í ensku. Mig langar bara að segja: ,,Heyrðu, sestu bara niður, hlustaðu og lærðu. Ég hef margt að kenna þér". Eina vandamálið er að ég kann ekk að útskýra enskuna á spænsku og ég efast um að þau myndi læra margt ef ég færi að útskýra á íslensku. :D
Ég er oft syngjandi í skólanum, þegar ég skil ekki hvað fólk er að tala um raula ég oft bara með sjálfri mér og Anais bað mig um að kenna sér Lítill mexíkani. Ég lærði það lag áður en ég fór út bara vegna þess að það er um mexíkana. :P En allavegana reyndi ég að kenna henni það og fór yfir hvert orð fyrir sig. Hún náði því nokkurn veginn, nema "lítill"

Kveðjur frá Panama :P

Friday, 28 September 2012

28. september 2012

Hola!

Nú er fyrsta vikan búin og það er búið að vera frábært í skólanum. Í dag var einhverskonar danstími og við vorum látin dansa í panamískum pilsum. Ég kunni ekki neitt og það hlýtur að hafa verið fyndið að horfa á mig reyna að dansa panamískan þjóðdansa. En ég ætla að læra þessa dansa, þeir eru rosa skemmtilegir.
En guð minn almáttugur hvað þessi skóli er fáránlega óskipulagður. Ég held að við höfum farið í fjóra tíma í þessari viku sem við gerðum eitthvað. Stundum koma kennararnir og fara svo eftir fimm mínútur eða þá að þeir koma alls ekki. Og mér sem fannst ég vera í mörgum götum í skólanum á Íslandi. Í dag t.d. vorum við í þessum danstíma og svo var skólinn búinn, við héngum bara inni í stofunni og dönsuðum meira þangað til við gátum farið heim.
Á morgun ætla nokkrir vinir mínir að koma í heimskókn og svo ætlar fjöskylda mín að fara í keilu. Við Goy ætlum líka kannski að fara í mollið. :D
Það er líka staður hérna nálægt sem er hægt að fara á hestbak og við ætlum að fara þangað fljótlega. Hlakka geðveikt mikið til. Hestarnir hérna eru rosa fallegir. :)
Mér finnst við samt hanga of mikið heima, krakkarnir hérna hittast bara um helgar og eru bara heima hjá sér eftir skóla og ef það er eitthvað heimanám gera þeir það. Mér var sagt að krakkar lærðu stundum saman eftir skóla en hef ekki orðið var við það. Það er eins hjá systur minni.
Skólinn er líka hrikalega stuttur, við erum búin kl 12:40. Við byrjum reyndar kl 7 en þetta er samt alveg svakalega stuttur skóladagur.
Svo langar mig aðeins að kvarta pínu: ég er öll út í mosquito bitum, þær virðast elska mig en það er óvenjulegt því oftast þegar ég fer til útlanda eru þær ekkert svo hrifnar af mér. Svo er líka alveg rosalega, svakalega heitt. Ég er alltaf að deyja úr hita. Og svo eru ógeðslegar köngulær og pöddur hérna. :S
En hvað sem því líður er rosa gaman hérna og mér líður alveg rosalega vel. Fjölsylda mín er alveg indæl og skólinn rosa skemmtilegur.

Bæbæ

25. september 2012

Hæhæ,

mig langaði bara að segja að í dag var fyrsti skóladagurinn minn. Hann var alveg ágætur, þurftum reyndar að vakna kl 5 svo ég var svoldið þreytt. Fatta reyndar ekki alveg hvers vegna við urðum að fara út úr húsinu kl 6 og vera mætt í skólann 6:20 þegar skólinn opnar ekki fyrr en kl 7. Svo þurftum ég og mamma mín að bíða í 3 klukkutíma eftir að fá að tala við skólastjórann. En það eru alveg yndislegir krakkar í skólanum, allir svaka vinalegir.
Það eru allir hérna að tala um það hvað ég sé falleg. Með falleg augu og meira segja með fallegt nef. Og hvert sem ég fer starir fólk á mig. Þetta eykur heldur betur sjálfstraustið. :P
En ég held að mér eigi eftir að líka vel í skólanum. Ég er strax búin að eignast nokkra vini. :D
Ég er í sama skóla og þrír aðrir skiptinemar. Ein er frá Hungary, ein er frá Hollandi og ein er frá Thailandi. Ég er í sama bekk og stelpan frá Thailandi. Ég er ekki alveg viss hvernig á að skrifa nafnið hennar en það er borið fram eins og Goy, hún er búin að vera hérna í 7 mánuði og búin að ná spænskunni nokkuð vel. Hinar tvær heita Fruzsi og Amarenz og eru í stofunni við hliðina á okkar. Þær eru allar mjög næs og ég held að við eigum eftir að ná ágætlega saman. :)

Segjum þetta gott, þarf að fara að sofa. Vakna kl 5 á morg :S

Bæjjó

Friday, 14 September 2012

14. september 2012

Hæ, hæ allir.

Það er frekar fyndið að nafnið mitt 'Una' þýðir ein á spænsku. Þegar ég kom hingað voru allir "ahhh, so u are the one". Svo komst ég að því að nicknamið mitt 'Bogga' þýðir varir. Þess vegna kalla allir mig bara Bobba. Það virðist ekki hafa neina aðra þýðingu. :P
Hundurinn okkar, Lecter, er alveg rosalega sætur en það er alveg óþolandi hvað hann er óuppalinn. Hann heldur alltaf fyrir mér vöku á nóttinni og vekur mig snemma á morgnana með endalausu gelti. Enginn annar virðist vera að pirra sig á þessu. En hann er samt algjör dúlla svo ég get ekki verið pirruð út í hann. :D
Mér finnst ég vera alveg hrikalega snyrtileg hérna, og fyrir ykkur sem farið í hláturskast þegar þið lesið þetta þá ættuð þið að sjá hvernig þetta er hérna. Íspinna spýtur á gólfunum og svoleiðis. Ég var að vaska upp í gær og sumt af þessu var alveg ógeðslegt. T.d. þá var einn pottur sem var allur út í eldgömlum matarleifum. Þar sem fólkið vaskar upp með svampi en ekki uppþvottabursta þá var frekar erfitt að þrífa þær í burtu, en ég held að ég hafi náð þeim flestum. Svo var líka kaffikannan. Kannan sjálf var s.s. nokkuð hrein en lokið, sem ég held að hafi einu sinni verið hvítt var dökk brúnnt. Ég er nokkuð viss um að hún hafi aldrei verið þrifin almennilega. Þegar ég var búin var lokið orðið svona ljósbrúnt. Fjölskyldu minni fannst ég eflaust frekar lengi að þessu. Sérstaklega þegar ég var að þurrka pottinn og tók eftir að hann var ennþá hræðilega skítugur og fór að reyna að þrífa hann aftur. Systir mín horfði alveg undrandi á mig. Ég held að ég muni heimta að vaska alltaf upp núna. :D
Svo langar mig aðeins að minnast meira á umferðareglurnar. Mér sýnist ég vera sú eina sem notar beltið og svo er maður alltaf að sjá einhverja sitjandi ofan á hvort öðru eða bara í skottinu. Þetta er meira að segja gert  í leigubílum.

En segjum þetta gott í bili. :D

P.s. er búin að sjá umferðaljós. Þau eru greinilega inni í stærri borgunum. :P


Tuesday, 11 September 2012

Fyrstu dagarnir

Hæhæ allri,
ég er skiptinemi í Panama. Ég er búin að vera hérna í nokkra daga og hitinn er alveg að drepa mig. Sem betur fer er fósturfjölskylda mín með sundlaug í garðinum. Það eru allir mjög vinalegir hér en flestir tala ekki ensku nema mi papa sem var skiptinemi í Bandaríkjunum. Mi mama er frekar slöpp og er alveg að missa röddina. Ég vona að henni batni bráðum. Ég deili herbergi með systur minni Estefany. Hún er mjög næs en talar svo mikið sem ekkert í ensku.
Mig langar aðeins að tala um umferðina í Panama. Ég held að fólkið í Panama þurfi að læra umferðareglurnar.
Ég held að ég hafi ekki séð eitt einasta umferðaljós. Ef þú þarft að komast yfir einhverja götu verður þú bara að gjöra svo vel að bíða þar til þú kemst yfir.
Eitt af því sem ég elska við þennan stað er að eiginlega allir eiga hunda og þeir mega bara fara hvert sem þeir vilja. Enginn taumur, þeir bara elta þig út um allt. Við erum með tvo hunda, annar er mjög gamall en hinn bara 12 mánaða, samt er hann næstum því jafn stór og ég þegar hann stendur á tveimur löppum. Hann heitir Lecter eftir Hannibal Lecter en hinn heitir Otis. Lecter er lokaður inni í garðinum því annars færi hann bara eitthvað út í buskann en Otis er frjáls ferða sinna.
Ég er að hugsa um að byrja að borða kjöt meðan ég er hérna úti til að gera það auðveldara fyrir fjölskyldu mína. En ekki gera ykkur neinar grillur mamma og pabbi, ef ég borða kjöt hérna úti verð ég hætt því áður en ég lendi á Íslandi.
En ég held að þetta sé nóg í bili,
segi ykkur meira seinna. :D