Hola everybody!!
Hérna í Panama er ennþá rosa gaman, ég finn ennþá ekkert fyrir þessari svaka heimþrá sem á að koma núna á næstu vikum. Ég hef ekki áhyggjur af því, reyndar hef ég frekar áhyggjur af því að tíminn er of fjlótur að líða. Ég meina það er nú þegar liðinn einn mánuður. Bara 10 eftir. :(
Í gær fór ég með Goy og Amarenz til Panama city til að kaupa miða á fótboltaleik, Panama vs Spain, í nóvember. Við ætluðum líka að fara í Albrook, sem er eitt af mollunum í Panama. En þar sem við fórum ekki heim eftir skóla til að skipta um föt fengum við ekki að fara inn. Engir skólabúningar leifðir nema í fylgd með fullorðnum. Ég fatta þetta ekki, fyrst eru þau að troða okkur í þessa skólabúninga og svo megum við ekki vera neins staðar í þeim.
Ég og Goy erum orðnar rosa góðar vinkonur og ég er strax farin að kvíða fyrir því þegar hún fer. Hún er búin að vera hérna í 7 mánuði og fer því í janúar. En við erum búnar að ákveða að ég fari og heimsæki hana til Thailands og hún komi í heimsókn til Íslands. Og mamma, núna er ég komin með tvöfalda ástæðu til að fara til Hollands þegar ég kem heim. Bæði til að hitta Liesbeth og þau hin frá Amsterdam og til að hitta Amarenz aftur. :D
Næsta mánudag er ég að fara hitta alla hina frá AFS og við verðum á ströndinni í þrjá daga að tana 8-) Það verður rosa gaman, en pabbi minn sagði að ég þyrfti að fara rosa varlega á þessari strönd af því að fólk væri oft að deyja þarna. Ég sagði honum að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, ég bjarga mér. :P
Ég er að hugsa um að taka yfir ensku tímana í skólanum. Ég þarf að halda aftur af mér í hverjum einasta tíma svo ég leiðrétti ekki hvert einasta orð sem kennarinn segir í ensku. Mig langar bara að segja: ,,Heyrðu, sestu bara niður, hlustaðu og lærðu. Ég hef margt að kenna þér". Eina vandamálið er að ég kann ekk að útskýra enskuna á spænsku og ég efast um að þau myndi læra margt ef ég færi að útskýra á íslensku. :D
Ég er oft syngjandi í skólanum, þegar ég skil ekki hvað fólk er að tala um raula ég oft bara með sjálfri mér og Anais bað mig um að kenna sér Lítill mexíkani. Ég lærði það lag áður en ég fór út bara vegna þess að það er um mexíkana. :P En allavegana reyndi ég að kenna henni það og fór yfir hvert orð fyrir sig. Hún náði því nokkurn veginn, nema "lítill"
Kveðjur frá Panama :P
No comments:
Post a Comment