Hola, hæhæ, สวัสดี,
Koi er farin heim. Flugið hennar fór núna kl 7. Ég, Fruzi, Mike og þrír aðrir skiptinemar fórum að kveðja hana á flugvellinum. Pabbi minn keyrði okkur. Við náðum í Fruzi að húsinu hennar sem er hérna rétt hjá okkur og svo ætluðum við að sækja Amarens. Hún sagði okkur að ná í sig hjá El Rey í bænum þar sem hún býr en þegar við komum þangað var hún ekki þar og svaraði ekki símanum sínum. Ég held að við höfum reynt svona 20 sinnum í heima símann hennar en hann var alltaf upptekinn. En allavegana, meðan við vorum þarna að reyna að ná í Amarens sáum við Mike og annan skiptinema og ákváðum að spyrja þá hvort þeir vissu um Amarens, þeir vissu ekki hvar hún var en þeir voru á leiðinni á flugvöllinn svo við ákváðum að gefa þeim far. Svo þegar við komum á flugvöllinn hringdi svo annar skiptinemi í Mike og ákvað svo að koma líka með enn öðrum skiptinema. Svo þurftum við að bíða eftir Koi því gaurinn frá AFS sem sótti hana var svo seinn. En svo þurftum við að segja bæ við Koi sem var mjög erfitt en annars var bara gaman þarna á flugvellinum, svoldið svona eins og AFS fundur á flugvellinum. Svo keyrðum við hina skiptinemana á Albrook og svo lögðum við pabbi minn, Fruzi og ég af stað heim. Og aumingja Amarens ætlaði að reyna að hitta okkur á flugvellinum en kom síðan rétt eftir að við fórum.
Á föstudaginn hélt bekkurinn okkar kveðjupartý fyrir Koi. Það var rosa sætt af þeim. Þau komu með köku, nammi, snakk, gos og hrísgrjón. Er það bara ég eða er eitthvað sem passar ekki beint inn?? En það var rosa gaman. Við sungum og dönsuðum og meira að segja kennararnir voru bara að hanga með okkur í stað þess að reyna að kenna okkur eitthvað. Allir skrifuðu svo eitthvað á skirtuna hennar Koi og mér finnst það svo frábær hugmynd að ég held að ég muni stela henni þegar ég fer heim. Svo þegar við byrjuðum á kökunni skelltu þeir andlitinu á Koi ofan í kökuna. Eitthvað í sambandi við að taka fyrsta bitann. En þetta var rosalega vel gert hjá þeim og Koi var voða ánægð.
Í gær fór ég með systur minni á einhverja hátið í tilefni Panamíska þjóðbúningnum. Þar tókum við þátt í skrúðgöngunni og í miðri þvögunni hitti ég Astrid, bekkjarsystur mína, og var með henni restina af göngunni. Hún lét mig dansa og klappa allan tímann og ég get svarið að mér hefur aldrei orðið svona heitt á ævinni. En sem betur fer gat Astrid bjargað lífi mínu með vatni því ég átti engann pening. Astrid sagði mér líka að Koi væri þarna einhversstaðar og mig langaði svo að hitta hana og leitaði út um allt en fann hana hvergi. Eftir gönguna fór ég með systur minni á Feria sem ég sá ekki alveg tilganginn með því við vorum bara þarna og gerðum ekki neitt. Svo finnst mér líka frekar skrítið á þessum hátíðum hérna að fólkið er allt drekkandi eins og t.d. á menningarnótt á Íslandi en þetta er allt um miðjan dag. Það er hálf fyndið að sjá allt þetta drukkna fólk um miðjan dag syngjandi og gólandi.
Núna þegar sumarfríið byrjar er ég að fara að læra á gítar og að dansa salsa. Svo ætlar pabbi minn að fara að kaupa saumavél svo ég get farið að sauma aftur. Svo ætlar fjöslylda mín að ferðast með mér um Panama svo ég ætti að hafa nóg að gera í sumarfríinu mínu yfir jólin. Og svo ætla ég líka að láta reyna á mína stórkostlegu eldunarhæfileika og gera möndlugraut fyrir fólkið og sjá hvernig þeim líkar hann, ef hann verður ætur.
Þangað til næst
Chao, bæbæ, ลาก่อน
Graðir gaurar: 48
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju finnst fóki skrýtið að borða spaghetti með tómatsósu?
2. Hvers vegna er panamískt fólk alltaf seint?
3. Hvers vegna er öllum sama þótt þeir séu seinir?
4. Afhverju eru svona margir villi hundar?
5. Afhverju eiga allir hunda en enginn vill eiga ketti?
Kveðjupartýið hennar Koi
Koi eftir að stinga antlitinu ofan í kökuna
Fólk að skrifa á skirtuna hennar Koi
No comments:
Post a Comment