Monday, 29 October 2012

29. október 2012

Hæhæ,

Í dag á mamma mín hérna afmæli. Við ætlum að fara út að borða og halda upp á það. Ég teiknaði handa henni kort, sem ég verð að segja að hafi tekist nokkuð vel til þótt ég segi svo sjálf. Svo ætla ég að gefa henni gjöf líka sem ég hef ekki ennþá haft tíma til að gera, því ég má ekki fara neitt ein. En pabbi minn ætlar að redda mér.
Í dag fórum við í ensku próf í skólanum og ég get svarið að þetta hefði ekki getað verið auðveldara. Ég var í svona tvær mínútur að leysa það, en öllum fannst það sjúklega erfitt. Svo voru líka heilmargar villur í prófinu sjálfu en ég nennti ekki að leiðrétta kennarann.
Mér finnst líka svoldið furðulegt við skólann að þau beinlínis loka okkur inni. Það eru hlið á skólanum sem eru lokuð meðan skólatíminn er og þú mátt aðeins fara út ef þú ert veikur og búinn að fá leyfi frá skólastjóranum um að fara heim. Við erum kannski búin í skólanum, það eru ekki fleiri tímar og okkur er hreinlega bannað að fara fyrr en skólatíminn er búinn. Eins og t.d. daginn sem við vorum ekki í neinum tíma, við urðum bara að hanga og gera ekki neitt þar til klukkan varð 12:40. Þessi skóli er alveg rosa brenglaður.
Núna 14. nóvember er ég að fara á fótbolta leik: Panama vs Spain. Hlakkar rosa mikið til, það verður örugglega rosa stemming. Fólkið hérna í Panama er rosalega hrifið af fótbolta. Ég veit hins vegar ekki hvort ég eigi að halda með Panama eða Spáni. Venjulega myndi ég halda með Spáni en langar ekki að móðga fjölskyldu mína með því að halda ekki með Panama, því þau eru svo miklir fótbolta aðdáendur og mjög stolt af sínu liði. Ætli ég verði ekki bara í rauðu, sem er litur beggja liðanna, og hvetji þau bæði. :D
Ég er búin að vera að tala svo mikið á ensku og spænsku að mér er farið að finnast skrýtið að tala íslensku t.d. við foreldra mína og vini.
Segjum þetta gott,

Bæbæ

Graðir gaurar: 21

Spurningar bloggsins:

1. Afhverju er ég alltaf svöng?
2. Afhverju borða allir hrísgrjón og kjúkling að minnsta kosti einu sinni á dag?
3. Hef ég hitt þessa manneskju áður?
4. Afhverju tala sumir ekki við mig í skólanum en þegar við erum á fb hætta þeir ekki að blaðra?
5. Afhverju setja þau salt á allt, salat, egg, brauð og bara allt?

No comments:

Post a Comment