Friday, 28 September 2012

28. september 2012

Hola!

Nú er fyrsta vikan búin og það er búið að vera frábært í skólanum. Í dag var einhverskonar danstími og við vorum látin dansa í panamískum pilsum. Ég kunni ekki neitt og það hlýtur að hafa verið fyndið að horfa á mig reyna að dansa panamískan þjóðdansa. En ég ætla að læra þessa dansa, þeir eru rosa skemmtilegir.
En guð minn almáttugur hvað þessi skóli er fáránlega óskipulagður. Ég held að við höfum farið í fjóra tíma í þessari viku sem við gerðum eitthvað. Stundum koma kennararnir og fara svo eftir fimm mínútur eða þá að þeir koma alls ekki. Og mér sem fannst ég vera í mörgum götum í skólanum á Íslandi. Í dag t.d. vorum við í þessum danstíma og svo var skólinn búinn, við héngum bara inni í stofunni og dönsuðum meira þangað til við gátum farið heim.
Á morgun ætla nokkrir vinir mínir að koma í heimskókn og svo ætlar fjöskylda mín að fara í keilu. Við Goy ætlum líka kannski að fara í mollið. :D
Það er líka staður hérna nálægt sem er hægt að fara á hestbak og við ætlum að fara þangað fljótlega. Hlakka geðveikt mikið til. Hestarnir hérna eru rosa fallegir. :)
Mér finnst við samt hanga of mikið heima, krakkarnir hérna hittast bara um helgar og eru bara heima hjá sér eftir skóla og ef það er eitthvað heimanám gera þeir það. Mér var sagt að krakkar lærðu stundum saman eftir skóla en hef ekki orðið var við það. Það er eins hjá systur minni.
Skólinn er líka hrikalega stuttur, við erum búin kl 12:40. Við byrjum reyndar kl 7 en þetta er samt alveg svakalega stuttur skóladagur.
Svo langar mig aðeins að kvarta pínu: ég er öll út í mosquito bitum, þær virðast elska mig en það er óvenjulegt því oftast þegar ég fer til útlanda eru þær ekkert svo hrifnar af mér. Svo er líka alveg rosalega, svakalega heitt. Ég er alltaf að deyja úr hita. Og svo eru ógeðslegar köngulær og pöddur hérna. :S
En hvað sem því líður er rosa gaman hérna og mér líður alveg rosalega vel. Fjölsylda mín er alveg indæl og skólinn rosa skemmtilegur.

Bæbæ

1 comment:

  1. Gaman að lesa bloggið þitt Una mín. Það er svo gott að vita að þér líður vel og ert ánægð með lífið í Panama :)

    ReplyDelete