Saludos desde Panamá
Allt er orðið svo miklu auðveldara núna, ég held að það sé aðalega vegna þess að ég má taka strætó núna. Pabbi minn náði að sannfæra mömmu mína um það að það væri betra fyrir mig að kunna á strætó kerfið ef eitthvað skildi koma upp á. Núna finnst mér ég ekki vera eins bundin við heimilið og ekki eins háð fjölskyldunni. T.d. alltaf þegar mig vantaði eitthvað þurfti ég alltaf að bíða eftir að einhver hefði tíma til að fara með mér og oftast þurfti ég að bíða í nokkra daga og jafnvel meira en viku, en núna get ég farið sjálf. Ég þarf ekki að bíða í nokkra klukkutíma eftir taxanum eftir skóla heldur get ég núna farið heim þegar ég vil og það tekur styttri tíma, það er ódýrara og er í alla staði miklu betra fyrir mig.
Núna er planið hjá mér að fara í ræktina 3-4 sinnum í viku. Ræktin er rétt hjá skólanum mínum en ég yrði samt að fara heim til að skipta um föt, vegna þess að það er engin aðstaða til að skipta um föt. Það verður skemmtileg tilbreyting. Ég þarf bara að fá leyfi frá fjölskyldunni en ég sé enga ástæðu fyrir þau til að neita. Strætó kerfið er í rauninni mjög einfalt.
Á morgun ætla ég svo að fara í Westland, ef Fruzsi eða Mario nenna með mér. Mér langar alltaf að fara eitthvað núna þegar ég get það. Ég vil alltaf fara í Westland, jafnvel þó að mig vanti ekkert og einnig þótt að enginn geti komið með mér. Það eitt að komast út eftir skóla er svo mikið frelsi eftir síðustu mánuði að ég get einfaldlega ekki lýst því hversu góð tilfinning það er.
Ég get líka farið í El Rey núna, matvörubúð, en fjölskyldan mín fer alltaf í Extra. Í El Rey, eða Kónginum, fást ferskir og góðir ávextir og það er meira úrval af þeim en í Extra, einnig er hægt að kaupa venjulegan ost þar. Svo í staðinn fyrir að koma við í Extra á leiðinni heim, þá rölti ég út í El Rey. Fyrsta skiptið sem að ég fór þangað ein hafði ég bara einu sinni áður farið þangað úr skólanum og ég var hrædd um að villast á einum tímapunti, en það er svo sem ekki hægt vegna þess að búðin er við aðal götuna, svo ef þú villist þarftu bara að finna götuna og þá er ekkert mál að finna hana. En ég get sem sagt loksins borðað ávexti. Það kemur á óvart hvað það er lítið úrval af ávöxtum hér í Panamá, ég meina flestir af þessum ávöxtum eins og t.d. mangó, bananar, appelsínur og fleira vex hérna í Panamá, en það er nánast ómögulegt að finna góða ávexti í búðunum (nema El Rey). Pabbi minn segir að það sé vegna þess að flestir ávextirnir eru sendir úr landinu og enda í búðum út um allan heim, eða alla vegana víða.
Í skólanum er skipulagið eins og venjulega, mjög rólegt. Kennararnir koma og kenna nánast ekkert, heldur sitja bara og spjalla við okkur um veðrið. Við Fruzsi ákveðum oft að fara í miðri kennslustund að fara í matsalinn og þá stöndum við bara upp og göngum út án þess að segja orð og þegar við komum út segjum við alltaf :" Not a single fuck was given", vegna þess að kennarinn segir aldrei neitt og er alveg sama. Við gerum oft grín að því að við ættum að prófa að gera þetta í skólunum okkar heima. Ég held að ef að ég myndi bara allt í einu standa upp og labba út úr kennslustund myndi kennarinn halda að eitthvað væri að hjá mér. Ég held að sumir myndu ekki segja orð, þeir yrðu svo hissa, og jafnvel elta mig út og spyrja hvort allt væri í lagi. Við gerum líka grín að því hvað kennararnir myndu segja ef þeir eltu okkur niður í matsalinn og við myndum segja "Ææji, ég varð bara allt í einu svo svöng". Ég get alveg séð fyrir mér andlitið á kennaranum.
Um síðustu helgi komu, eins og venjulega, frænkur okkar í heimsókn og þá er grillið tekið út og pabbi minn grillar pulsur. Og svo var Karaoke tækið tekið fram og ég byrjaði að fýla mig í botn og söng hvert lagið á eftir öðru og fékk frábær score. Svo daginn eftir komu vinir Xeniu og þau voru að læra allan daginn og um hádegið var grillið tekið fram aftur og pabbi minn gerði Quesadillas sem eru hrikalega góðar. Vinur pabba míns kom líka í heimsókn. Hann talar ágæta ensku og við töluðum heillengi saman um umhverfisvernd. Ég byrjaði á því að kvarta við pabba minn um það hvað panamískt fólk er ósnyrtilegt og hendi rusli hvar sem er. Það eru engar almennings ruslatunnur í borginni svo fólk hendir alls konar rusli á göturnar. Hvert sem þú ferð, þar er alls staðar allt í rusli. Og vinur pabba míns heyrði mig segja þetta og við fórum að ræða saman um það hvað yrði að gera í þessu. Ég sagði honum frá því skipti, það var fljótlega eftir að ég kom hingað, þá fór ég með Estefany og Juliu niður í bæ og við keyptum okkur allar að drekka. Þegar þær voru búnar hentu þær flöskunum á götuna en ég setti mína í veskið mitt og beið eftir því að finna ruslatunnu, en sá enga allan daginn. Svo ég endaði með því að taka hana heim og henda henni þar. Mér finnst þetta svoldið skrítið fyrirkomulag. En hvað get ég gert í því?
Svo núna í lok júlí ætlum við til Sanblas, pabbi minn er alltaf að skipta um skoðun hvaða helgi hentar best. Það er víst alltaf mikil rigning þar, en hann lofar að fara áður en ég fer heim til Íslands. Vááá, heim til Íslands. Ég fer heim eftir 35 daga, rúmlega einn mánuð. Ég er ekki tilbúin, tíminn líður allt of hratt. Ég er loksins farin að venjast öllu hér í Panamá og þá þarf ég að fara heim. Ég er að vísu farin að hlakka til að fá venjulegan mat að borða, sem er ekki hrísgrjón. Ég er meira að segja búin að koma skilaboðum til ömmu Eddu og byðja hana um að gera fyrir mig fiski hlaðborð þegar ég kem heim, með steiktum fiski, fiskibollum og fiskihring. Mamma segir hins vegar að það væri kannski of mikið mál að elda þetta allt á einum degi og það er allt í lagi, þá get ég bara farið oftar í mat til ömmu. En það verður samt svo hrikalega skrítið að koma heim þar sem allt er eins og það var, en mér finnst ég vera svo breytt. Það verður athyglisvert og ég ætla mér að nýta þennan eina mánuð í botn, fara út og hafa það gott. Hitta vinina, tana meira (ef það hættir einhverntíman að rigna) og verja tíma með fjölskyldunni.
Núna á föstudaginn ætlum við að fara í bíó og sjá Despicable Me 2. Við vorum að horfa á fyrstu myndina fyrir nokkrum dögum og ákváðum svo að fara og sjá númer 2. Það verður gaman, því mig langar virkilega að eyða meiri tíma með fjöslkyldunni áður en ég fer. Þau eru yndisleg og ég á eftir að sakna þeirra svo mikið. En Estefany ætlar að koma næsta sumar og vera í fjóra mánuði og svo síðustu vikuna ætla foreldrar hennar að koma og sækja hana. Það verður æðislegt. Og Xenia er að hugsa um að koma í vetur og prófa að fara á skíði. Ekkert þeirra hefur séð snjó, nema pabbi minn þegar hann var skiptinemi í Bandaríkjunum, svo það væri skemmtilegt fyrir þau.
En núna er ég orðin frekar þreytt, þarf að vakna snemma til að fara í skólann á morgun. Svo segjum þetta gott í bili og við sjáumst eftir rúman mánuð. :D
Buenas noche y dulce sueños
Lecter er ekki hrifinn af rigningunni
Amma með baby Sofhiu
Sko hvað hún er hrifin af ömmu gömlu :D
Graðir gaurar: 221
Spurningar bloggsins:
1. Hvers vegna eru engar ruslatunnur í bænum?
2. Afhverju ber fólkið V fram eins og B?
3. Hvers vegna eru nánast hvergi seldir góðir ávextir?
4. Afhverju er panamískt fólk svona óskipulagt?
5. Fær fólkið hérna ekki leið á hrísgrjónum?
Ég hlakka til að sjá ykkur öll :P
This comment has been removed by the author.
ReplyDeleteI'm glad you can take the bus and explore a bit more. Being cooped up sucks. You're perspective on Panama is good to hear, good and bad. Interesting about the lack of trashcans.
ReplyDeleteYes, they really need to rethink the no trashcans in towns, Panama city has them on the tourist spots and it's so clean compared to other places here in Panamá.
ReplyDeleteI agree. By the way I sent you a message on Skype.
Delete