Saturday, 5 January 2013

4. janúar 2013

halló allir,
gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

Panama er svo fallegt land. Ég var að keyra til Las Tablas og ég var rosa þreytt vegna þess að við þurftum að vakna snemma til að leggja af stað. Ég var að reyna að sofna þótt að ég vissi að ég get nánast aldrei sofnað sitjandi og svo opnaði ég augun og glaðvaknaði og eyddi restinni af leiðinni til að horfa út um gluggann og horfa á landslagið. Rosalega fallegt.
Við fórum í jólaveislu hjá skólanum þar sem Bettsie frænka mín vinnur. Þetta var minnsti skóli sem ég hef séð, ein kennslu stofa. Þetta var rosa gaman, allir að dansa og syngja og svo fóru strákarnir að reyna að klifra upp staur sem var þakinn einhverju til að gera staurinn sleipari. Þetta er einhver leikur um að reyna að vera fyrstur til að komast upp og ná í verðlaunin sem eru hengd efst uppi. Svo var þarna gaur sem heitir Tony og var að spurja mig hvernig tungumál væru kennd á íslandi því hann er að vinna í því að bæta ensku kennsluna hérna og ég gaf honum nokkur ráð. Svo sagði hann að ef mig vantaði einhvern tíman einhverja aðstoð skildi ég bara hringja í hann. Svo bauð hann mér í dans. En þetta var svaka gaman.
Á 24. des. urðu pabbi minn og mamma að vinna fyrir hádegi svo ég nýtti tímann og vaknaði snemma til að búa til Ris á l'amande áður en pabbi minn kæmi heim og færi að nota eldhúsið. Það heppnaðist bara rosa vel og ég var hálf hissa á því hvað þetta var auðvelt, hélt alltaf að það væri alveg svakalega flókið að búa til möndlugraut. Svo komu foreldrar mínir heim og pabbi minn eyddi restinni af deginum í eldhúsinu. Svo klukkan svona milli 9-10 um kvöldið fóru gestirnir að koma, flestir urðu að vinna svona lengi. Svo borðuðum við og hlustuðum á týpíska panamíska tónlist sem var spiluð frekar hátt og allir urðu að hrópa til þess að aðrir heyrðu. Svo varð einn af gaurunum alveg blind fullur og var hangandi utan í mér allt kvöldið og spurja mig hvort ég vildi vera kærastan hans og svaraði bara ,, nei guð minn góður, þú ert allt of gamall fyrir mig''. Ég meina gaurinn var 44 ára gamall. Öllum fannst möndlugrauturinn minn rosa góður en enginn fann möndluna vegna þess að hverjum og einum var skammtað svo lítið, svo seinna um kvöldið fór pabbi minn með svoldið af matnum til nágrannana og tók líka smá af grautnum, svo um morguninn var skálin kláruð en enginn hafði fundið möndluna svo við reiknum með að nágrannarnir hafi fengið hana. Svo klukkan svona 2 fóru flestir heim og nokkrir vinir Estefany komu og ég sat úti á pallinum með pabba mínum og við spjölluðum þar til hann var orðinn svo þreyttur og fór inn að sofa. Vinir Xeniu ætluðu að koma og vera með karaoke en þeir komu aldrei. Svo fór ég líka inn að sofa.
Svo milli jóla og nýárs fór ég með Xeniu og Estefany í afmæli til littla bróður vinkonu Xeniu og hittum vini hennar þar. Við vorum þar að spjalla í svona klukkutíma og svo fórum við í El Rey súpermarkaðinn og Xenia og vinir hennar keyptu sér bjór og sígarettur og svo fórum við heim til einhvers þeirra. Þar drukku þau bjórinn og keðjureikt sígaretturnar og spjölluðu svo saman um kynlíf. Einn af vinum Xeniu er enskukennari og hann var þarna og þýddi fyrir mig og kenndi mér nokkur orð í spænsku og svo bauðst hann til að hjálpa mér að læra spænsku, gaf mér númerið sitt og sagði að ég gæti hringt í hann ef mig vantaði einhvern tíman einhverja aðstoð. Svo fórum við heim, Xenia keyrandi þótt hún hefði drukkið svona 4-5 bjóra, við komum heim svona milli 2 og 3 um nóttina. En þetta var rosa gaman, það er skemmtilegra að hanga með vinum Xeniu en vinum Estefany.
Svo um morguninn á gamlársdag vöknuðum við klukkan sex til að geta lagt af stað klukkan sjö til Las Tablas. Við vorum rúmlega þrjá klukkutíma á leiðinni. Las Tablas er heimabær pabba míns og mamma mín bjó þar rétt hjá þegar hún var ung. Svo þegar við komum þangað fórum við að heimsækja helling af fólki og þar á meðal bróður pabba míns. Hann á tvo börn, Aivan sem er aðeins eldri en ég og eina stelpu, sem ég man ekki hvað heitir, sem er 16 ára. Þau töluðu bæði góða ensku svo ég náði að kynnast þeim vel og þau eru rosa næs, ég vona að ég hitti þau aftur áður en ég fer. Svo fórum við í hús sem pabbi pabba míns á og lögðum okkur í nokkra klukkutíma. Svo höfðum við okkur til, fórum til bróður pabba míns og borðuðum. Eftir það fórum við í miðbæinn. Þar var hálfgerð skrúðganga, nema hún gekk bara hring eftir hring í kring um torgið. Svo var skotið upp helling af flugeldum, allt of mikið að mínu mati, og hávaðinn var ótrúlegur og allir héldu fyrir eyrun. Og á endanum kviknaði í einu húsinu, en ekki alvarlega. Svo vorum við þarna til klukkan þrjú og ég var mest að spjalla við annað hvort Aivan eða systur hans.
Morguninn eftir fórum við að kveðja alla og svo heyrði mamma mín af einhverju partýi og varð alveg endilega að kíkja þangað, en það var í littlu þorpi nálægt Las Tablas. Það var alveg ágætt en mér fannst frekar óþægilegt hvað allir gaurarnir voru að stara á mig og senda mér fingurkossa, aðalega vegna þess að þeir voru allir eldri en fimmtugt. Og þau borðuðu hrísgrjón úr stærsta potti sem ég hef nokkurn tíman séð. Svo fórum við aftur til Las Tablas og kvöddum pabba og mömmu pabba míns. Svo lögðum við af stað heim og það tók okkur sjö klukkutíma að komast heim vegna þess að umferðin var alveg svakaleg.
Svo um kvöldið fór ég út á pallinn og þá hljóp alveg svaka stór könguló fram hjá mér. Hún hljóp næstum yfir fótinn á mér, mér brá ekkert smá. Svo stóð hún bara í rólegheitunum svona sirka metra frá mér. Ég fór að skoða hana, hún var svört með einhverskonar gulum doppum.
Svo næsta kvöld sá ég rottu í eldhúsinu, skemmtilegt dýralífið hérna. :D


Ril á l'amandið mitt


Það kom froskur í heimsókn og fór að borða hundamatinn


Þarna er stóri potturinn


ég og systir Aivans

Þangað til næst, bæjjjó :D

Graðir gaurar: 67

Spurningar bloggsins:

1. Hvurslags pizza staður selur ekki pizzur?
2. Afhverju finnst engum hérna nema mér froskar sætir?
3. Afhverju sprengja þau alla flugeldana í einu?
4. Er það bara ég eða er að hitna í Panama?
5. Afhverju finnst öllum McDonalds vera gott?