Halló allir,
Heimurinn er fullur af ósanngjörnu fólki. Fólki sem finnst rosa gaman að níðast á minni máttar og þannig sýna veldi sitt. Þá er ég aðalega að tala um framkvæmdarstjóra AFS í Panama en hann ætlar að senda Goi heim næsta sunnudag, sem þýðir að hún er að fara eftir fjóra daga. Ég er að vona að fjölskylda mín leyfi mér að fara með henni á flugvöllinn.
Síðasta sunnudag fór ég með fjöslkyldu minni á ströndina og við gistum þar eina nótt. Og þegar ég segi með fjölskyldu minni meina ég nánast allri fjölskyldu minni. Ég var nánast étin lifandi af moskítóflugum, bara á leiðinni á ströndina. Ekki um nóttina heldur aðeins á þessum fimm mínútum sem það tók mig að labba niður á strönd, 29 bit, fimm mínútur. Svo fór ég á hestbak á ströndinni og þetta var í fyrsta og eina skipti sem ég fer á hestbak í pilsi. Svo var maðurinn með hestinn svo hrikalega vondur við hann. Ég sver að hesturinn hrökk við í hvert sinn sem hann heyrði röddina hans. Og svo var hann alltaf að slá greyið dýrið.
Það var að koma í ljós að ég get ekki farið á fótbolta leikinn svo ég verð að reyna að selja miðann minn.
Næsta laugardag verð ég að klæðast Panamískum þjóðbúningi og dansa við einhverja tónlist og svo 28. nóvember verð ég svo að vera í íslenska þjóðbúningnum, sem ég var að sauma, í skrúðgöngu skólans. En ég þarf semsagt að ganga niður einhverja endalausa götu í steikjandi hita ásamt öllum hinum skólunum í La Chorrera.
Ég held að allur skólinn muni gráta þegar Goi fer, allir elska hana. Svo er ég búin að ákveða að fara að safna peningum þegar ég kem heim til íslands og fara og heimsækja hana.
Nóg í bili,
Bæjjó :D
Graðir gaurar: 33
Spurningar bloggsins:
1. Afhverju er ég alltaf þreytt?
2. Afhverju er öllum sama þótt þeir mæti of seint í tíma?
3. Fyrst það er bannað að vera málaður í skólanum, afhverju gera kennararnir ekki neytt þótt stelpur máli sig í tíma?
4. Afhverju eru allir svona vondir við dýrin?
5. Hvernig get ég verið svona fljót að eyða peningum þegar allt er svo ódýrt hérna?
Leiðinlegt mað hana Koi, þú heimsækir hana einn daginn, ég er viss um það :) Það verður gaman að sjá mynd af þér í búningnum sem þú saumaðir :)
ReplyDeleteþín mamma